Verð veiðileyfa 4. desember 2006 05:00 Söluskrá Stangaveiðifélags Reykjavíkur fyrir næsta ár var kynnt nú fyrir stuttu. Söluskráin er sérlega glæsileg og eru þar í boði rúmlega fimmtíu veiðisvæði, bæði í lax- og silungsveiði. Í kjölfarið hafa spunnist talsverðar umræður um verð veiðileyfa og einstaka hækkanir teknar út úr og gerð góð skil. Það er rétt að ákveðin ársvæði hækka talsvert umfram verðbólgu eða um 13-18%. Einnig er dæmi um 45% hækkun en þar er um að ræða eina laxveiðiá þar sem samningar voru endurnýjaðir og reyndar er svo með allar ár sem hækka umfram verðbólgu. En nauðsynlegt er í þessu samhengi að horfa á heildarmyndina. Flöt hækkun veiðileyfa í söluskrá SVFR fyrir sumarið 2007 miðað við árið áður er um 13%. Ef tillit er tekið til verðbólgu milli ára nemur meðalhækkunin í söluskránni því einungis um 6% umfram verðbólgu milli ára. Það eru um 20% veiðisvæði í söluskránni sem hækka umfram verðlagsþróun, önnur hækka í samræmi við verðbólgu og fjöldi veiðisvæða er einnig í boði á óbreyttri krónutölu milli ára. Í þeim flokki má sérstaklega nefna nokkur silungsveiðisvæði. Í silungsveiði hefur SVFR einmitt bætt verulega við sig í framboði og boðið ný ársvæði eins og Varmá/Þorleifslæk og Litlá í Kelduhverfi. Þar má einmitt sjá verðstefnu SVFR í hnotskurn því þar lækkar útsöluverð miðað við fyrri leigutaka en greiðslur til veiðiréttareigenda hækka. Segir þetta meira en margt annað um verðstefnu Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Umræða um verð veiðileyfa er eðlileg og hafa menn af því talsverðar áhyggjur hvert stefnir. Undanfarin tvö ár hefur verðstöðnun verið á verði í söluskrá okkar, þannig að ef verðbreytingar í þessari söluskrá eru skoðaðar til örlítið lengri tíma má sjá að SVFR hefur staðið verulega á bremsunni gagnvart verðhækkun veiðileyfa. Í tilfellum verðhækkana er ávallt um framlengingu leigusamninga að ræða. Það er kjarni málsins og afar mikilvægt hjá svo stóru félagi eins og Stangaveiðifélagi Reykjavíkur að halda úti og tryggja félagsmönnum nægjanlegt framboð veiðileyfa. Í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur eru nú yfir 3.000 manns og um 900 manns hafa gengið í félagið á tveimur árum. Þessi mikli vöxtur og áhugi á félaginu segir okkur að við erum á réttri braut og eigum samleið með veiðimönnum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Samræmd próf Jón Torfi Jónasson Skoðun Þjórsárver ekki þess virði? Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Flokks fólksins, vegna vanda söngnáms Aileen Soffía Svensdóttir Skoðun Svo verði Íslands ástkæra byggð ei öðrum þjóðum háð Anton Guðmundsson Skoðun Tíu staðreyndir um íslenskt samfélag Snorri Másson Skoðun Hættuleg utanríkisstefna forseta Bandaríkjanna Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun (orku)Sjálfstæði þjóðar Benedikt Kristján Magnússon Skoðun Þar sem fegurðin ríkir ein Halldór Eiríksson Skoðun Ég á þetta ég má þetta Arnar Atlason Skoðun Þarf að hemja hina ofurríku? Fastir pennar Skoðun Skoðun Þar sem fegurðin ríkir ein Halldór Eiríksson skrifar Skoðun Þjórsárver ekki þess virði? Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Svo verði Íslands ástkæra byggð ei öðrum þjóðum háð Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um íslenskt samfélag Snorri Másson skrifar Skoðun Hættuleg utanríkisstefna forseta Bandaríkjanna Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun (orku)Sjálfstæði þjóðar Benedikt Kristján Magnússon skrifar Skoðun Samræmd próf Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Flokks fólksins, vegna vanda söngnáms Aileen Soffía Svensdóttir skrifar Skoðun Gervigreind sem jafnréttistæki: Skóli án aðgreiningar Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Verða boðaðar kjarabætur örorkulífeyristaka að veruleika eða ekki? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Þjónusta við konur með endómetríósu tryggð Alma D. Möller skrifar Skoðun Húsnæðisöryggi – Sameiginleg ábyrgð Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Sóun á Alþingi Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Veiðigjöldin leiðrétt Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hvar er mennskan? Ægir Máni Bjarnason skrifar Skoðun Hjúkrunarfræðingar í takt við nýja tíma Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun NPA miðstöðin 15 ára Hallgrímur Eymundsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar Skoðun Umhverfisráðherra á réttri leið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Norðurþing treður yfir varnaðarorð og eignarrétt Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Lífið í bænum - fyrir suma Sigurður Kári Harðarson skrifar Skoðun Hver á arðinn af sjávarútvegsauðlindinni? Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Þegar dómarar eru hluti af vandanum og bókun 35 Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Samræmt námsmat er ekki hindrun heldur hjálpartæki Eiríkur Ólafsson skrifar Skoðun Aflögufærir, hafið samband við söngskóla í neyð Gunnar Guðbjörnsson skrifar Skoðun Að neyðast til að meta sína eigin umsókn í opinberan sjóð Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Tími vindorku á Íslandi – Hvað þyrfti til að koma í veg fyrir raforkuskerðingar? Edvald Edvaldsson skrifar Skoðun Fimm ár í feluleik Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sunnudagsblús ríkisstjórnarinnar Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hver er í raun í fýlu? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Tálsýn um hugsun Þorsteinn Siglaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Opið bréf til ráðherra Flokks fólksins, vegna vanda söngnáms Aileen Soffía Svensdóttir skrifar
Skoðun Verða boðaðar kjarabætur örorkulífeyristaka að veruleika eða ekki? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Tími vindorku á Íslandi – Hvað þyrfti til að koma í veg fyrir raforkuskerðingar? Edvald Edvaldsson skrifar