Afastelpa á Þing 10. nóvember 2006 05:30 PrófkjörBryndís Haraldsdóttir tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi, hún stefnir á 4-5 sæti. Hver er Bryndís og hverra manna er hún? Foreldrar eru Hafdís Rúnarsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir sem starfar á Sjúkrahúsinu á Akranesi og Haraldur Pálsson sem starfar við öryggisgæslu á Landspítalnum. Hún á fósturföður Karl Friðriksson framkvæmdastjóra hjá Iðntæknistofnun. Móðurafi er undirritaður og móðiramma er Guðrún Hafliðadóttir eða Dunna fjölskylduráðgjafi hjá SÁÁ í aldarfjórðung og fyrsti heiðursfélagi í Félagi Áfengisráðgjafa. Föðurafi var Páll Skúli Halldórsson kaupsýslumaður í Reykjavík og föðuramma er Guðrún, kölluð Rúrí lyfjatæknir. Fósturafi var Friðrik Karlsson kendur bæði við bæinn Hrísa í Húnavatnslyslu og Domus Medica. Hann sá um byggingu Domus og var framkvæmdastjóri þess í fjöldamörg ár, fósturamma var Guðrún Pétursdóttir, annáluðu sauma og hannyrðakona í Reykjavík. Bryndís heitir eftir móðir minni og finnst mér að hún hafi hún hafi erft margt frá henni eins og háralitinn og þessa rósemi og hæglæti sem einkennir svo mjög fas hennar. Hún var mjög feimið barn en læknaðist af feimninni þegar hún níu ára var með okkur hjónunum á McDonalds veitingastað í London. Hana langaði í ís og sagði ég henni að hún yrði að fara í biðröðina sjálf og kaupa ísinn og sagði henni hvað hún ætti að segja á ensku. Henni leist ekki á blikuna en lét tilleiðast og það var aldeilis hróðug stelpa sem kom til baka með ísinn sinn. Í dag er Bryndís 29 ára gömul hún er af þessari nýju kynslóð ungra kvenna sem er að hasla sér völl í atvinnulífinu en er um leið eiginkona og móðir. Jafnframt því að vera varaþingmaður starfar hún sem verkefnisstjóri Evrópuverkefna hjá Impru, nýsköpunarmiðstöð á Iðntæknistofnun, en hún lauk B.Sc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði við Tækniskóla Íslands árið 2001. Hún býr í Mosfellsbæ ásamt eiginmanni sínum Örnólfi Örnólfssyni rafvirkjameistara þau eiga tvö börn og ætla að bæta því þriðja við í lok janúar á næsta ári. Bryndís hefur brennandi áhugi á að starfa að framgangi sjálfstæðisstefnunnar þar sem frelsi einstaklingsins er í hávegum haft svo og jöfn tækifæri allra til að þroska og nýta hæfileika sína. Hún telur mikilvægt að Sjálfstæðisflokkurinn fái góða kosningu á komandi vori svo tryggt sé að Sjálfstæðisflokkurinn haldi áfram því mikilvæga starfi að tryggja öryggi og velferð íslensks þjóðfélags. Bryndís er tilbúin að leggja sitt af mörkum til að svo megi verða. Bryndís hefur verið varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi á yfirstandandi kjörtímabili og komið inn á þing í forföllum Þorgerðar Katrínar. Hún hefur verið varabæjarfulltrúi í Mosfellsbæ frá árinu 2002 og setið í fjölda ráða og nefnda á vegum flokksins. Bryndís hefur starfað mikið innan ungliðahreyfingarinnar og setið í stjórn SUS. Ég hvet alla sjálfstæðismenn í Suðvesturkjördæmi að veita Bryndísi brautargengi í 4-5 sæti í prófkjörinu, það verður engin svikin af því. Höfundur er sálfræðingur og fyrrverandi flugstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar