Ósamstíga í spánum 13. júlí 2006 06:30 Straumi spáð tapi reiningardeildir eru ósammála um hvert tap félagsins verði á öðrum ársfjórðungi.
Töluverðu munar á afkomuspám viðskiptabankanna til FL Group, Landsbankans og Straums. Munur gæti falist í mismunandi mati á hlutabréfaeign eða gjaldeyrisstöðu. Greiningardeildir bankanna eru ekki alltaf sammála þegar þær spá fyrir hagnað félaga í Kauphöll Íslands. Í nýútgefnum afkomuspám fyrir annan ársfjórðung greina þær mjög á um hver hagnaður Dagsbrúnar, FL Group, Landsbankans og Straums-Burðaráss verður. Allnokkur munur er á spám bankanna gagnvart FL Group en 3.482 milljónum króna munar á hæsta og lægsta gildi. Þar gerir KB banki ráð fyrir tæplega 1.398 milljóna króna hagnaði, Glitnir reiknar með 721 milljón króna tapi en Landsbankinn með 2.084 milljóna tapi. Haraldur Yngvi Pétursson, sérfræðingur hjá KB banka, telur að frávikin í spánum um afkomu FL Group liggi að stærstum hluta í mismunandi forsendum á þvi hvernig þróun á gjaldeyrisstöðu FL Group á öðrum ársfjórðungi varð. Hún var jákvæð í erlendri mynt um 93 milljarða króna við loks fyrsta ársfjórðungs. Þetta er eitthvað sem þeir hafa ekkert tjáð sig um á opinberum vettvangi. Landsbankinn spáir ekki fyrir sína eigin afkomu en KB banki spáir honum um 7.382 milljóna hagnaði en Glitnir aðeins 2.934 milljónum. Þarna munar 4.448 milljónum króna. KB banki reiknar með að hreinar rekstrartekjur LÍ verði 5,5 milljörðum meiri en það sem Glitnir ráðgerir. Þótt allir aðilar spái Straumi tapi á öðrum ársfjórðungi munar nokkru á spánum eða 1.600 milljónum króna á hæstu og lægstu spá. Munar þar mestu um hvernig gengistap af hlutabréfaeign er metið. Með jafnstórt hlutabréfasafn og Straumur-Burðarás hefur, sem þannig séð liggja ekki nákvæmar upplýsingar fyrir um samsetningu og hreyfingar, er ekki við öðru að búast en að menn meti stöðuna misjafnt, segir Davíð Rúdolfsson, sérfræðingur hjá KB banka. Hann á allt eins von á að stjórnendur Straums nýti sér tækifærið og færi niður viðskiptavild er myndaðist við samruna Burðaráss og Straums. Þá spáir KB banki því að Dagsbrún hagnist um 328 milljónir króna á fjórðungnum en bæði Glitnir og Landsbankinn reikna með sextíu til eitthundrað milljóna króna tapi.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Viðskipti innlent Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira