Gott uppgjör KB banka hressti ekki markaðinn 27. júlí 2006 06:30 Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka Meginverkefni bankans um þessar mundir eru að ljúka við endurfjármögnun lána sem falla til greiðslu á næsta ári og vinna úr þeim fjárfestingum sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum. MYND/GVA
KB banki skilaði þrettán milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi sem er þremur milljörðum meira en meðaltalsspá markaðsaðila hafði hljóðað upp á. Á sama tíma í fyrra var hagnaður bankans 13,8 milljarðar. Á fyrri hluta ársins hagnaðist bankinn því alls um 31,8 milljarða króna og nam arðsemi eigin fjár 36,2 prósentum á ársgrundvelli. Þessar góðu tölu frá KB banka höfðu hins vegar þau áhrif á gengi félagsins lækkaði um 1,5 prósent og endaði í 720 krónum á hlut. Markaðurinn lækkaði í heild sinni. "Við búumst ekki við stórum yfirtökum af hálfu KB banka á næstu mánuðum," segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, aðspurður um næstu skref. Mestur krafturinn á næstunni mun fara í það að vinna úr þeim fjárfestingum sem þegar hafa verið gerðar og vísar forstjórinn þar til FIH og Singer. Ef leitað verður að tækifærum verður einkum horft til banka sem fjármagna sig að stórum hluta á innlánum. Hreiðar Már segir að endurfjármögnun bankans á árinu 2006 sé lokið og bankinn vinni nú að því hörðum höndum að ljúka við endurfjármögnun næsta árs. "Við gerum okkur góðar væntingar að í lok þessa árs verði búið að ljúka við fjármögnun bæði FIH og móðurfélagsins." Nú þegar hefur samstæðan lokið við fjármögnun 6,3 milljarða evra fyrir árið 2007. Uppgjörið einkennist annars vegar einkum af miklum vexti hreinna vaxtatekna og hins vegar gengistapi af hlutabréfum sem teljast nýmæli þar á bæ. Þannig námu vaxtatekjur 14,4 milljörðum króna sem er 3,9 milljörðum króna hærri upphæð en á fyrsta ársfjórðungi. Hreiðar Már bendir á að há verðbólga, lækkun á gengi krónunnar, en nærri þrír fjórðu hlutar eigna bankans eru í erlendri mynt, og mikill vöxtur í starfsemi stærstu dótturfélaga skýrir þennan vöxt vaxtatekna. Gengistap nam 2,6 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 13,5 milljarða gengishagnað á þeim fyrsta. Lækkanir á hlutabréfamörkuðum, einkum á Norðurlöndum, ollu þessu gengistapi. Aðrar tekjur námu 10,1 milljarði króna sem skýrist af sölu á 24 prósenta eignarhlut í VÍS til Exista.Alls námu rekstrartekjur bankans á fjórðungnum 31 milljarði króna. Heildargjöld námu 14,8 milljörðum og jókst launakostnaður nokkuð vegna fjölgunar starfsmanna. Forstjórinn segir að af einstök afkomusvið hafi skilað því sem ætlast var, og sum gott betur en það, nema markaðsviðskipti sem hafi verið mestu vonbrigðin. Heildareignir KB banka voru 3.552 milljarðar króna þann 30. júní sem er tæplega fjörutíu prósenta aukning í krónum talið frá áramótum. Eigið fé bankans var á sama tíma 238,7 milljarðar króna.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira