Stork boðar til fundar um vantraust á stjórn 15. desember 2006 07:15 Kjarnastarfsemi Stork N.V. er í flugvélaiðnaði, en sá hluti fyrirtækjasamstæðunnar framleiðir meðal annars fyrir Boeing. Marel hefur hins vegar augastað á matvælavinnsluvélahluta Stork. MYND/AFP
Stjórn Stork í Hollandi boðar með harmkvælum sérstakan hluthafafund þar sem efnið er vantraustsyfirlýsing á hana. Tekist er á um stefnu þar sem stærstu hluthafar vilja brjóta upp starfsemina. Marel hefur hug á að kaupa Stork Food Systems. Stork-fyrirtækjasamstæðan hollenska boðar til sérstaks hluthafafundar í Amsterdam 18. janúar næstkomandi. Fundurinn er boðaður í kjölfar beiðni stærstu hluthafa Stork, bandarísku fjárfestingarsjóðanna Centaurus Capital og Paulson & Co., sem saman fara með um 32 prósenta hlut. Á fundinum verða bornar upp tvær tillögur sem sjóðirnir lögðu til í bréfi til Stork 23. nóvember síðastliðinn. Fyrri tillagan er vantraustsyfirlýsing á yfirstjórn (supervisory board) Stork. Verði hún samþykkt leiðir hún til þess að stjórnin þurfi að fara frá í heild. Í hinni er lagt til að sérhver ákvörðun framkvæmdastjórnar Stork (management board) varðandi kaup eða eignastýringu að virði meira en 100 milljónir evra verði tekin til endurskoðunar hluthafa á fundinum. Deila hluthafanna og stjórnar fyrirtækisins hljóp í algjöran hnút þegar stjórnin neitaði að fara eftir niðurstöðu meirihluta hluthafafundar í október þar sem samþykkt var að skipta samstæðunni upp þannig að Stork einbeitti sér að kjarnastarfsemi, en aðrir hlutar yrðu seldir. Marel sem með óbeinum hætti ræður yfir átta prósenta hlut í Stork sér mikil tækifæri í sameiningu við matvælavinnsluvélahlutann sem kallast Stork Food Systems. Kjarnastarfsemi Stork er hins vegar í flugvélaiðnaði og stendur sá hluti undir rúmum 60 prósentum starfseminnar. Í tilkynningu sem Stork sendi út í gær kemur fram að stjórn og stjórnendur telji tillögur sjóðanna „með öllu óréttlætanlegar, ábyrgðarlausar og þjóni ekki hagsmunum fyrirtækisins og hluthafa þess“. Stork segist þess fullvisst að tillögurnar séu til þess fallnar að rýra verðgildi hlutabréfa fyrirtækisins og séu skaðlegar viðskiptahagsmunum þess. „Því er eftir því kallað að hluthafar hafni allir tillögunum.“ Fyrirtækið segist hins vegar nauðbeygt til þess að boða til fundarins fyrst eftir því hafi verið leitað. „Vantrauststillagan er ekki einvörðungu byggð á óréttmætum og röngum málflutningi, heldur er hún til þess fallin að auka enn á þann óróa sem Stork er nú í með mögulegum alvarlegum afleiðingum fyrir fyrirtækið,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira