Hagvöxtur er mun minni en áður var gert ráð fyrir 14. desember 2006 07:00 Tölur Hagstofunnar um hagvöxt hafa tekið breytingum við endurskoðun og kom til dæmis í ljós á þessu ári að hagvöxtur í fyrra var mun meiri en ætlað hafði verið. Nýjasta mæling á þriðja ársfjórðungi bendir til minni hagvaxtar en ætlað var. MYND/Hari
Sérfræðingar eru bjartsýnni á stöðu efnahagsmála eftir birtingu nýjustu talna um hagvöxt. Greiningardeildir bankanna eru samt ekki á einu máli um væntanlega stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Þeir spá núll til 50 punkta hækkun. Verulega hefur hægt hér á hagvexti samkvæmt nýjustu mælingu Hagstofu Íslands. Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi mældist hann 0,8 próesent og hefur ekki verið minni síðan í árslok. Á þriðja ársfjórðungi í fyrra var hagvöxturinn 10,0 prósent. Greiningardeildir bankanna fjalla allar um breyttar horfur eftir mælinguna og telja tölurnar benda til að verulega hafi dregið úr verðbólguþrýstingi. Kaupþing telur þó engu að síður að Seðlabankinn hækki stýrivexti á aukavaxtaákvörðunardegi sínum 21. desember næstkomandi. Greiningardeildin segist ekki sjá að spá Seðlabankans frá síðustu Peningamálum hafi hnikast mikið til og því megi búast við 25 til 50 punkta hækkun. Stýrivextir gætu því farið úr 14 prósentum í 14,5 prósent. Greiningardeild Landsbankans stendur hins vegar við spá sína um óbreytta stýrivexti þann 21. desember, þótt undanfarið hafi umræðan þróast á þann veg að líkur á stýrivaxtahækkun hafi fremur aukist. Þá telur Landsbankinn að lækkunarferli stýrivaxta hefjist í marslok. Bendir greiningardeildin þar sérstaklega á hagvaxtartölur Hagstofunnar. Bankinn segir ýmis merki um viðsnúning í efnahagslífinu, minni þenslu og þar með minnkandi verðbólguþrýsting. Þannig hafi dregið úr vexti útlána og húsnæðisverð hætt að hækka, auk þess sem undanfarnar verðbólgumælingar hafi verið lágar. Þá sýni tölur um hagvöxt, einkaneyslu og fjárfestingar á þriðja ársfjórðungi mun minni vöxt en áður. Á móti bendir bankinn svo á að veiking krónunnar 5,6 prósent frá síðustu spá Seðlabankans auki að öðru óbreyttu verðbólguþrýsting og að kosningaloforð séu í algleymingi. Greiningardeild Glitnis fer svo milliveginn í spám Landsbankans og Kaupþings og spáir núll til 25 punkta hækkun stýrivaxta. Bankinn segir hagvaxtartölurnar bera þess skýr merki að umskipti séu að verða í gangi þjóðarbúskaparins þar sem tímabil stöðnunar og hugsanlega samdráttar sé að taka við af hröðum vexti. „Tölurnar eru mikilvægar fyrir næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans. Þær draga talsvert úr líkum á því að Seðlabankinn muni hækka vexti.“ segir Glitnir. Friðrik Már Baldursson, forseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans, segir Seðlabankann horfa til margra þátta þegar kemur að vaxtaákvörðun og því kunni að vera varhugavert að einblína um of á hagvaxtartölur Hagstofunnar. „Margir aðrir þættir liggja mun hraðar fyrir og hefur sýnt sig að þessar fyrstu áætlanir hagstofunnar um hagvöxt breytast stundum og eru kannski ekki mjög nákvæmar,“ segir hann og bendir á að ýmsar aðrar vísbendingar bendi til þess að staðan sé betri en spáð hafi verið. „Viðskiptajöfnuður er skárri og svo framvegis. En samt verður að segjast eins og er að engin óyggjandi vísbending er um að eitthvað sé að linna undirliggjandi verðbólkuþrýstingi.“
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira