Stýrivöxtum haldið óbreyttum vestra 14. desember 2006 06:30 Seðlabanki Bandaríkjanna hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Reiknað er með lækkun stýrivaxta snemma á næsta ári. MYNDAFP
Í rökstuðningi stjórnar seðlabankans fyrir ákvörðuninni var áréttað líkt og fyrr að bankinn muni fylgjast grannt með verðbólguþróun í Bandaríkjunum. Greiningardeild Glitnis sagði í Morgunkorni sínu á þriðjudag að verðbólga væri lág í Bandaríkjunum eða 1,3 prósent. Þá hefur hægt nokkuð á hagvexti vestanhafs á árinu en hann fór úr 2,6 prósentum á fyrsta fjórðungi ársins niður í 2,2 prósent á þeim þriðja, sem þó er umfram spár. Glitnir bendir hins vegar á að þensla sé á vinnumarkaði og hröð hækkun launakostnaðar vestanhafs valdi því að stjórn seðlabankans verði að vera á varðbergi. Hagfræðingar í Bandaríkjunum eru sama sinnis og benda á að vísbendingar séu uppi um enn frekari hægingu á efnahagslífinu á næsta ári og benda á að vísitala framleiðslukostnaðar hafi ekki verið verri í þrjú ár. Það hafi komið illa niður á gengi bandaríkjadals gagnvart öðrum gjaldmiðlum, ekki síst breska pundinu en fyrr í þessum mánuði hafði dalur ekki verið lægri gagnvart pundinu í 14 mánuði. Flestir eru þó á einu máli um að seðlabankinn muni hefja vaxtalækkunarferli snemma á næsta ári.
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira