Sumum er evran eðlilegt skref 24. ágúst 2006 06:00 Bjarni Már Gylfason "
Evran er kannski eðlilegt skref þessara stóru fyrirtækja sem eru að gera sig gildandi á alþjóðamarkaði og þurfa á því að halda að vera eftirsótt í augum fjárfesta alls staðar," segir Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Hann segir að hvort sem fólki líki betur eða verr séu fyrirtæki landsins smám saman að verða evrópskari og um leið hafi það áhrif á markaðinn hér. Meðal fyrirtækja sem hér eru skráð í kauphöll og hafa tekjur að mestu erlendis frá ágerist þessa dagana umræða um þann möguleika að skrá hlutabréf sín í erlendri mynt. "Þessi þróun byrjaði fyrir nokkrum árum þegar skattalögum var breytt á þann hátt að fyrirtæki máttu gera upp í hvaða gjaldmiðli sem er," segir hann og bætir við að ljóst sé að á meðan hlutabréf séu skráð í krónum séu þau ekki jafnálitlegur fjárfestingarkostur. "Þeir sem kaupa hlutabréf í krónum taka á sig mjög mikla gengis-áhættu og það hlýtur að fæla frá góða fjárfesta." Þá segir Bjarni áhugaverðar hugmyndir sem hreyft hefur verið við á vettvangi Alþýðusambands Íslands um að greiða laun að hluta í evrum. "Svo má ekki gleyma að laun sjómanna, þótt þau séu ekki beintengd við evru, eru tengd við tekjur útgerðarinnar," segir hann og bendir á að fyrir þá væri mjög hagstætt að taka húsnæðislán í evrum. Aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptaka evru sem gjaldmiðils í stað krónu er eitt af helstu stefnumálum Samtaka iðnaðarins. Bjarni segist ekki viss um að Evrópusambandið og evrumál verði hitamál í næstu Alþingiskosningum. "Ég óttast að menn forðist að ræða þetta, þrátt fyrir að brýn þörf sé á því. En sterkur þrýstingur frá fyrirtækjum og atvinnulífi gæti breytt því."
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira