Mesti hagnaður í sögu Glitnis 2. ágúst 2006 06:00 Bjarni ármannsson forstjóri. Glitnir skilaði meiri hagnaði á öðrum ársfjórðungi en þeim fyrsta. MYND/BRINK
Glitnir skilaði methagnaði á öðrum ársfjórðungi, þegar bankinn hagnaðist um ellefu milljarða króna. Þetta er mesti hagnaður í sögu bankans á einum ársfjórðungi. Samanlagður hagnaður bankans á fyrri árshelmingi nemur því 20,1 milljarði króna og er hann eini bankinn sem bætti hagnað frá frá fyrsta ársfjórðungi. Arðsemi eigin fjár um 46 prósent á sama tíma sem er hærri arðsemi en hjá hinum viðskiptabönkunum. Afkoma bankans er langt umfram væntingar markaðsaðila sem höfðu reiknað með sjö til átta milljarða hagnaði á fjórðungnum. Glitnir er aukinheldur eini viðskiptabankinn sem jók hreinar rekstrartekjur á milli fyrsta og annars ársfjórðungs og má segja að þar hafi legið spáskekkja markaðsaðila. Námu þær alls 18,6 milljörðum og hækkuðu um rúm sjö prósent frá fyrsta ársfjórðungi. Hreinar vaxtatekjur voru 11,5 milljarðar króna á fjórðungnum, sem er helmingur af öllum vaxtatekjum ársins í fyrra, og jukust þær um 3,5 milljarða króna frá fyrsta árshluta eða um 45 prósent. Þjónustutekjur námu 5,9 milljörðum og hækkuðu lítillega frá fyrsta ársfjórðungi. Fjárfestingartekjur og aðrar tekjur námu rúmum einum milljarði króna á fjórðungnum en voru um 3,7 milljarðar á fyrsta árshluta. Undir aðrar tekjur fellur meðal annars söluhagnaður af þriðjungshlut íSjóvá-Almennum upp á 2,4 milljarða króna. Rekstrargjöld námu tæpum 6,7 milljarði og hækkuðu um fjórtán prósent á milli fjórðunga. Eignir Glitnis voru 2.023 miljarðar króna í lok júní og höfðu aukist um 551 milljarð frá áramótum. Eigið fé bankans var 126 milljarðar.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira