Júníhallinn slær öll met 29. júlí 2006 06:00 Gámar fullir af góssi. Ekkert lát er á innflutningi til landsins. Enn eykst innflutningur á neysluvörum þótt aukningin sé minni en oft áður.
Vöruskiptahalli nam 66,8 milljörðum króna á fyrri helmingi árs, samkvæmt Hagstofu Íslands, og hefur aldrei verið meiri. Það er tæplega þrjátíu milljarða aukning frá fyrra ári. 15,7 milljarða króna vöruskiptahalli var í júní, en var til samaburðar 8,1 milljarður í fyrra, og er það mesti halli í einum mánuði frá því Hagstofan hóf að birta tölur. Alls voru fluttar út vörur fyrir 114,3 milljarða króna fyrstu sex mánuði ársins og jókst verðmæti útflutts varnings um 4,9 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Sjávarafurðir voru 55,9 prósent alls útflutnings en iðnaðarvörur rúmlega 39 prósent. Hagstofan metur tölur um inn- og útflutning á föstu gengi og samkvæmt þeim hefur verðmæti sjávarafurða aukist um 2,1 prósent. Björn Rúnar Guðmundsson, sérfræðingur hjá Greiningardeild Landsbankans, bendir á að útflutningur á sjávarafurðum hafi þó dregist töluvert saman að magninu til á öllum sviðum sjávarútvegs. Á sama tíma hafi gengi krónunnar veikst og afurðaverð hækkað og því sé samdrátturinn ekki greinilegur í framsetningu Hagstofunnar. Mestur varð hann í útflutningi á loðnu- og síldarafurðum, eða um fimmtíu prósent miðað við sama tímabil í fyrra að raungildi. Verðmæti vöruinnflutnings á fyrstu sex mánuðum ársins nam 181,2 milljörðum króna og jókst um 34,7 milljarða frá fyrra ári. Aukning varð á öllum sviðum innflutnings en mest í fjárfestingavöru, sem að mestu má rekja til aukinna stóriðjuframkvæmda, auk hrá- og rekstrarvöru. Mun minni aukningar gætir nú í innflutningi á neysluvörum en fyrr á árinu. Björn segir þó ólíklegt að samdráttar fari að gæta í innflutningi þeirra fyrr en á næsta ári. Verð á útfluttum vörum eykst hraðar en verð á innfluttum vörum, sem Björn segir jákvæðar fréttir fyrir íslenska þjóðarbúið. Skýrist það meðal annars af hækkandi verði á sjávarafurðum og áli. Vöruskiptahallinn fyrir allt árið í heild var 93 milljarðar króna í fyrra. Miðað við hvað hann er orðinn nú leikur enginn vafi á að meiri halli verði á vöruskiptum í ár en var í fyrra. Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir halla upp á 110 milljarða, sem er í takt við væntingar Greiningardeildar Landsbankans.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira