Viðskipti innlent

Skilaði hagnaði: Sóknarfæri fyrir Lýsingu

Eignarleigu- og fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf., dótturfélag Exista hf., skilaði 455 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrri helmingi ársins. Útlán jukust um 45,8 prósent og námu þau tæpum 54 milljörðum króna í lok tímabilsins.

Viðskiptamönnum Lýsingar, bæði fyrirtækjum og einstaklingum, fjölgaði verulega á tímabilinu.

Í tilkynningu til Kauphallar Íslands um uppgjör fyrirtækisins kemur fram að enn séu sóknarfæri til staðar.

Ekkert bendi til annars en að það sem eftir lifi árs geti orðið félaginu farsælt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×