Gull Seðlabankans ávaxtast vel 19. júlí 2006 08:15 Gullstangir Seðlabanki Íslands á 64 þúsund únsur af gulli sem eru vel geymdar í Englandsbanka.
Gullforði Seðlabanka Íslands var í júní í ár rúmlega þriggja milljarða króna virði og fjögur prósent af erlendum eignum sjóðsins. Frá áramótum hefur virði gullsins aukist um 940 milljónir króna. Þá var forðinn 2.074 milljóna króna virði eða um þrjú prósent af erlendum eignum bankans. Þessi mikla hækkun kemur ekki til af því að Seðlabankinn hafi fært sig í öruggt skjól gullsins. Seðlabankinn hefur um langa hríð átt rúmar 64 þúsund únsur af gulli sem varðveittar eru í Englandsbanka. Hefur bankinn hvorki selt af því né bætt við sig svo árum skiptir heldur leigjast gullstangirnar út og hefur bankinn af þeim vexti. Tvennt kemur til hækkunar á virði gullsins. Annars vegar að gullforðinn er metinn að markaðsvirði og gullverð hefur hækkað verulega á undanförnum árum. Verð á únsu var til að mynda 613 dollarar í júnílok en 513 dollarar í árslok 2005. Hins vegar hefur dollarinn styrkst gagnvart krónunni sem enn eykur á virði gullsins sem metið er í dollurum. Aðalbókari Seðlabanka Íslands segir gulleign Seðlabankans í dag fyrst og fremst koma til af sögulegum ástæðum. "Þetta stendur á gömlum merg. Það er löngu liðin tíð að gullforðinn sé notaður sem trygging varðandi seðlaútgáfu. Flestir seðlabankar heims eiga enn eitthvert magn af gulli en það er sjaldan mikilvægasta eignin eins og áður fyrr." Nú stendur erlendir gjaldeyrir, sem samanstendur af seðlum og innistæðum annars vegar og verðbréfum hins vegar, fyrir langstærstum hluta erlendra eigna Seðlabanka Íslands.
Mest lesið Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Viðskipti innlent Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Viðskipti innlent Lofar að koma böndum á CNN Viðskipti erlent Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Viðskipti innlent Kristín og Birta ráðnar til Origo Viðskipti innlent Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Viðskipti innlent Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Viðskipti innlent Kostnaður við tónleika útskýri hátt miðaverð Neytendur Fleiri fréttir Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Veiðigjald á þorski nánast tvöfaldað milli ára Ákvörðun um fjárhæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venjulega Leggur til þrjár aðgerðir á ögurstundu fjölmiðla Áttatíu hafa sótt um nýju leiðina, Stefnir fagnar ákvörðun Seðlabankans Gervigreind á jólaísnum hafi komið á óvart Bein útsending: Orkan, álið og kísillinn Opnar útibú Forréttabarsins á kunnuglegum stað Nefndarmaður hefði kosið að halda stýrivöxtunum óbreyttum Gagnrýna að seljendur og verktakar þurfi einir að lækka verð Stefnir í að eitt minkabú verði eftir á landinu Ráðin nýr markaðsstjóri Nettó og Kjörbúðanna Félögin þeirra högnuðust mest Útspilið hafi komið á óvart og hætta sé á minni uppbyggingu „Mikilvægt að skrifa ekki undir neitt nema vita hvað það er“ Margrét hættir hjá RÚV um áramótin Sjá meira