Viðskipti innlent

HBOS með Baugi

Breski fjárfestingarbankinn HBOS verður meðal lykilfjárfesta í kaupum Baugs á bresku vöruhúsakeðjunni House of Fraser. Frá þessu sagði í The Daily Telegraph og öðrum breskum fjölmiðlum í gær. Aðrir sem vænst er að komi að yfirtökunni eru FL Group, breski fjárfestirinn Kevin Stanford auk smærri fjárfesta.

Baugur, sem þegar á 9,5 prósenta hlut í HoF, lagði fram tilboð í félagið í júní. Hljóðaði það upp á 148 pens á hlut, sem nemur um 48 milljörðum króna, með þeim fyrirvara að áreiðanleikakönnun myndi standast. Baugur er nú í óða önn við framkvæmd hennar og er þess vænst að endanlegt yfirtökutilboð berist um miðjan ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×