PLIVA biður hluthafa að halda að sér höndum 1. júlí 2006 07:30 Höfuðstöðvar PLIVA í zagreb í Króatíu Ameríska lyfjafyrirtækið Barr Pharmaceuticals hækkaði enn boð sitt í króatíska lyfjafyrirtækið PLIVA í gær til að bregðast við hækkuðu boði frá Actavis. Mynd/PLIVA
Actavis og ameríski lyfjarisinn Barr slást um króatíska samheitalyfjafyrirtækið PLIVA. Barr hefur hækkað boð sitt og Actavis reynir fjandsamlega yfirtöku. PLIVA segir að leggjast þurfi yfir tilboðin á ný því á báðum geti verið fletir sem varði við samkeppnislög í Bandaríkjunum. Actavis og ameríska lyfjafyrirtækið Barr Pharmaceuticals bítast enn um samheitalyfjafyrirtækið PLIVA. Á fimmtudag lagði Actavis fram nýtt boð í fyrirtækið og upplýsti að það réði þegar með beinum og óbeinum hætti yfir 20,4 prósentum hlutafjár í fyrirtækinu. Barr svaraði svo með hærra gagntilboði í gær, alls 755 króatískum kúnum á móti 735 kúna tilboði Actavis fyrir hvern hlut. Áður hafði stjórn PLIVA sagst styðja fyrra tilboð Barr. Mat sérfræðinga er að með því að tryggja sér fimmtungshlut í PLIVA sé Actavis í mjög sterkri stöðu í baráttunni um fyrirtækið. Þar sem ólíklegt er að Króatíska ríkið (sem á um 20 prósent í félaginu) taki afstöðu með öðrum hvorum aðilanum sést að um 40 prósent af atkvæðum munu ekki falla Barr í skaut, bendir greiningardeild Kaupþings banka á og segir ljóst að til að af yfirtöku Barr geti orðið þurfi fyrirtækið stuðning nánast allra eigenda núverandi útistandandi hluta. Samkvæmt upplýsingum Actavis samsvarar 735 kúna tilboð fyrirtækisins fyrir hvern hlut í PLIVA því að boðnir séu rúmlega 170 milljarðar króna fyrir fyrirtækið. Þá segir Actavis að fjármögnun á kaupunum sé frágengin og í umsjón bankanna JP Morgan, HSBC og UBS. Tilboðið var sett fram án fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Við höfum enn mikinn áhuga á að eiga PLIVA að fullu og mynda þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims. Við vonumst til að fá formleg viðbrögð frá stjórn PLIVA við tilboði okkar og í kjölfarið að fá tækifæri til að leggja fram formlegt yfirtökutilboð til hluthafa PLIVA, segir Róbert Wessman, forstjóri Actavis, en þar á bæ voru menn enn að meta upp komna stöðu í gærkvöldi. Stjórn PLIVA biður hins vegar hluthafa að bíða rólega því bæði tilboð Actavis og Barr feli í sér mál sem kalli á aðkomu og álit samkeppnisyfirvalda í Bandaríkjunum og að tilraun til að ljúka kaupum á fyrirtækinu áður en leyst hefði verið úr málum bryti í bága við samkeppnislög þar. Þá áréttar PLIVA að samkvæmt króatískum yfirtökulögum beri hverjum þeim sem nær beinum eða óbeinum yfirráðum yfir 25 prósentum hlutafjár eða meiru í skráðu fyrirtæki að tilkynna það þegar til þar til bærra yfirvalda og leggja strax fram lögbundið yfirtökutilboð til annarra hluthafa.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira