Kaupið heystakkinn 1. mars 2005 00:01
Ef ég hefði vitað um framtíðarárangur Warren Buffet 1973 þegar ég skrifaði A Random Walk Down Wall Street, þá hefði ég að sjálfsögðu ráðlagt fólki að fjárfesta í sjóð hans, Bekrshire Hathaway, frekar en í vísitölusjóði," segir Burton G. Malkiel, hagfræðiprófessor við Princeton, sem staddur er hér á landi í boði Íslandsbanka. "Framtíðin mun einnig geta af sér fjárfesta eins og hann. Vandinn er að við vitum ekki hverjir þeir eru og að finna þá er eins og að leita að saumnál í heystakki. Því segi ég kaupið heystakkinn." Malkiel setti fram hugmyndir sínar um að besta leið venjulegs fjárfestis væri að kaupa í vísitölusjóðum í bók sinni árið 1973 og kenningar hans hafa staðist tímans tönn. Bók hans er ein af biblíum fjárfestingarfræðinnar. Malkiel segir að miðað við mælikvarða sem hann leggur til grundvallar og hafi gefist vel megi ekki búast við tveggja stafa tölu í ávöxtun í nánustu framtíð. "Ég held að fjárfestar verði að venjast þeirri tilhugsun að tveggja stafa ávöxtun sé ekki í boði til lengri tíma litið nú." Hann segir hlutabréf þó ekki hátt í sögulegu samhengi eins og megi ætla við fyrstu sýn. Mat hans sé að markaðurinn sé eðlilega verðlagður miðað við vexti annarra fjárfestingarkosta. Áhætta og ávöxtun eru hugtakapar í fjárfestingum. Aukin áhætta gefur von um betri ávöxtun. Malkiel segir að þegar litið sé á hlutabréf á minna þróuðum mörkuðum og skuldabréf í hæsta áhættuhópi, þá séu menn ekki verðlaunaðir nægjanlega fyirir aukna áhættu. Boðskapur hans sé nú eins og fyrir þrjátíu árum að kaupa í vísitölusjóðum þar sem rekstrarkostnaður er minni en í virkum sjóðum. Sagan sýni að viðskiptakostnaður og rekstrarkostnaður dragi úr ávöxtun þannig að vísitölusjóðir hafi vinninginn. Nema menn séu svo heppnir að finna nálina í heystakknum. Malkiel fræddi íslenska fagfjárfesta um sjónarmið sín á hádegisfundi í gær og síðan almenna fjárfesta á fjölmennum fundi á hótel Nordica í gærkvöld.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira