Verðlag hækkar umfram spár 13. desember 2005 07:45 Fatnaður og skór hækkuðu um 2,1 prósent milli nóvember og desember, sem kom greiningaraðilum á óvart. Bjuggust fleiri við því að sterkt gengi krónunnar myndi lækka verð á þessum vörum.
Spáð var að verðlag stæði í stað milli nóvember og desember. Það stóðst ekki og er verðbólga enn fyrir ofan þolmörk Seðlabankans. Vísitalan sem mælir breytingar á verði neysluvara hækkaði um 0,36 prósent milli nóvember og desember. Hagstofa Íslands tilkynnti þetta í gær. Er þetta meiri hækkun neysluverðsvísitölunnar en greiningadeildir bankanna höfðu spáð. Gerður starfsmenn þeirra ráð fyrir að verðlag myndi hækka mest um 0,1 prósent milli mánaða. Í fréttum greiningardeildar Íslandsbanka segir að spáskekkjan stafi einkum af verðhækkun á dagvörum umfram spá og af gjaldskrárhækkun fyrir símaþjónustu. Matvöruverð hafi einnig hækkað lítillega umfram spá og leigurverð talsvert, sem hefur þó lítið vægi í vísitölunni. Greiningardeild KB banka segir að hækkun á verði fatnaðar komi á óvart. Styrking kr""onunnar hefði frekar átt að leiða til lækkunar. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,1 prósent, sem er langt yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Miðar Seðlabankinn við að verðbólgan sé í kringum 2,5 prósent og víkji ekki meira en 1,5 prósent frá því markmiði. Í síðasta mánuði var tólf mánaða verðbólga 4,2 prósent. Sé ekki tekið tillit til hækkun húsnæðisverðs í þessum tölum hækkaði verðbólgan um 0,7 prósent síðustu tólf mánuði. Þar er rót verðbólgunnar að finna. Greiningardeild KB banka telur að dregið hafi úr spennu á fasteignamarkaði og því muni þessi áhrif fjara út á nýju ári. Í fréttum Íslandsbanka segir að Seðlabankinn hafi ítrekað hækkað stýrivexti á síðustu misserum til að slá á þenslu í hagkerfinu. "Stýrivextir bankans standa nú í 10,5 prósentu og reikna má með frkari vaxtahækkun á næstunni. Mikil spenna á vinnumarkaði stuðlar að launaskriði um þessar mundir og eykur það á undirliggjandi verðbólguþrýsting í hagkerfinu." Seðlabankinn tilkynnir næstu vaxtaákvörðun 26. janúar. Þegar þetta var ljóst í gærmorgun styrktist gengi krónunnar og ávöxtunarkrafa verðtryggða skuldabréfa lækkaði.
Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira