Aukum þorskveiðar á Íslandsmiðum 13. janúar 2005 00:01 Þorskveiðar - Kristinn Pétursson fiskverkandi Ráðgjafar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og Hafrannsóknastofnunar í þorskveiðiráðgjöf virðast vitlaust menntaðir. Menntun þeirra byggir á þeim misskilningi að fæða í hafinu sé óendanlega mikil. Einnig þeim fráleita misskilningi að það sé löglegt að breyta birgðatalningu (stofnmælingu) aftur í tímann með ágiskunum. Þessar tvær misskildu forsendur eru grunnurinn að því að ákvarða náttúrulegan dánarstuðul sem fasta – 0,2 þ.e. 20% af hverjum árgang deyi náttúrulegum dauða árlega – burtséð frá sjávarskilyrðum, eða fæðuframboði. Þegar frávik verða svo frá áætlun í veiðiráðgjöf, eins og t.d. 1998-2000, þegar það "týndust" 757 þúsund tonn af þorski – (sjá ástandsskýrslu Hafró 2003) þá er hurðinni skellt á líklegasta og rökréttasta möguleikann – að þessi týndi þorskur (757 þúsund tonn) hafi drepist, vegna hungurs og ótímabærs kynþroska - sem rekja megi hugsanlega til offriðunar á smáþorski (vitlausri ráðgjöf). Allt að 90% af kynþroska smáþorski 4-6 ára virðist hafa drepist eftir fyrstu hrygningu (árgangurinn 1993) - í stað 20% eins og reiknílíkan ráðgjafa gerir ráð fyrir – (skv. tilgátu - án vísindarannsókna). Alþjóðlegar grundvallarreglur um birgðatalningar hjá löggiltum endurskoðunarfyrirtækjum eru skýrar: Bannað er að breyta áður töldum birgðum aftur í tímann án sannana úr gögnum þess árs þegar talið var. Stofnmæling botnfiska er árleg birgðatalning þeirra sem stranglega er bannað að breyta - hvað þá með ágiskun! Verði hækkaður dánarstuðull viðurkenndur þessi ár, í stað falskenningarinnar "ofmat", gerist það óvænta - þorskstofninn stækkar í birgðabókhaldi Hafró, hugsanlega í 1.200 þúsund tonn. 25% aflaregla leyfir þá aukna veiði - 300 þúsund tonn. Aukna veiði á þorski í dag ber því að skilgreina sem minni áhættu, þar sem fæðuskortur virðist meiri áhætta (sbr. týndan þorsk) – aukinn sjálfdauði og sjálfát þorsks samfara lækkandi kynþroska. Hvorki Hafrannsóknastofnun eða ICES ljá máls á faglegri umræðu um þetta. Þessir aðilar - vitlaust menntaðir - virðast annað hvort heilaþvegnir af þessari vitlausu menntun eða halda að þeir geti þagað þessi mistök í hel! Nú er staðan sú að þorskstofninn hérlendis hefur étið upp rækjustofninn, vaxtarhraði er fallandi og loðnan heldur sig meira fjarri þorski en áður. Hvað á þorskurinn að éta? Nú er fæðuskortur hjá þorskinum og af þeim ástæðum enn brýnna en áður að auka þorskveiði. Samfara er sjávarhiti hærri, sem eykur brennslu og þar með fæðuþörf þorsks! Margar fleiri staðreyndir eru til staðfestingar því að auka þorskveiði. Í Barentshafi er t.d. ný staðreynd að veitt hefur verið a.m.k. 200% umfram ráðgjöf undanfarin ár og þorskstofninn þar fer stækkandi - sem afleiðing aukinnar veiði! Frjósemi fiskistofna virðist vaxa við aukið veiðiálag. Stalín gekk aldrei svo langt að hann léti gera áætlanabúskap fyrir neðan yfirborð sjávar. Áætlanabúskapur ICES er bara kommúnismi, vitlaus kenning á misskildum forsendum. 757 þúsund týnd tonn þorsks á þremur árum (1998-2000) eru til vitnis um þetta. Feigðin í ráðgjöf og einokun ICES birtist í ótal myndum. Hvenær ætla svo fjölmiðlar að fjalla um þetta sem alvarlegt málefni? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Þorskveiðar - Kristinn Pétursson fiskverkandi Ráðgjafar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og Hafrannsóknastofnunar í þorskveiðiráðgjöf virðast vitlaust menntaðir. Menntun þeirra byggir á þeim misskilningi að fæða í hafinu sé óendanlega mikil. Einnig þeim fráleita misskilningi að það sé löglegt að breyta birgðatalningu (stofnmælingu) aftur í tímann með ágiskunum. Þessar tvær misskildu forsendur eru grunnurinn að því að ákvarða náttúrulegan dánarstuðul sem fasta – 0,2 þ.e. 20% af hverjum árgang deyi náttúrulegum dauða árlega – burtséð frá sjávarskilyrðum, eða fæðuframboði. Þegar frávik verða svo frá áætlun í veiðiráðgjöf, eins og t.d. 1998-2000, þegar það "týndust" 757 þúsund tonn af þorski – (sjá ástandsskýrslu Hafró 2003) þá er hurðinni skellt á líklegasta og rökréttasta möguleikann – að þessi týndi þorskur (757 þúsund tonn) hafi drepist, vegna hungurs og ótímabærs kynþroska - sem rekja megi hugsanlega til offriðunar á smáþorski (vitlausri ráðgjöf). Allt að 90% af kynþroska smáþorski 4-6 ára virðist hafa drepist eftir fyrstu hrygningu (árgangurinn 1993) - í stað 20% eins og reiknílíkan ráðgjafa gerir ráð fyrir – (skv. tilgátu - án vísindarannsókna). Alþjóðlegar grundvallarreglur um birgðatalningar hjá löggiltum endurskoðunarfyrirtækjum eru skýrar: Bannað er að breyta áður töldum birgðum aftur í tímann án sannana úr gögnum þess árs þegar talið var. Stofnmæling botnfiska er árleg birgðatalning þeirra sem stranglega er bannað að breyta - hvað þá með ágiskun! Verði hækkaður dánarstuðull viðurkenndur þessi ár, í stað falskenningarinnar "ofmat", gerist það óvænta - þorskstofninn stækkar í birgðabókhaldi Hafró, hugsanlega í 1.200 þúsund tonn. 25% aflaregla leyfir þá aukna veiði - 300 þúsund tonn. Aukna veiði á þorski í dag ber því að skilgreina sem minni áhættu, þar sem fæðuskortur virðist meiri áhætta (sbr. týndan þorsk) – aukinn sjálfdauði og sjálfát þorsks samfara lækkandi kynþroska. Hvorki Hafrannsóknastofnun eða ICES ljá máls á faglegri umræðu um þetta. Þessir aðilar - vitlaust menntaðir - virðast annað hvort heilaþvegnir af þessari vitlausu menntun eða halda að þeir geti þagað þessi mistök í hel! Nú er staðan sú að þorskstofninn hérlendis hefur étið upp rækjustofninn, vaxtarhraði er fallandi og loðnan heldur sig meira fjarri þorski en áður. Hvað á þorskurinn að éta? Nú er fæðuskortur hjá þorskinum og af þeim ástæðum enn brýnna en áður að auka þorskveiði. Samfara er sjávarhiti hærri, sem eykur brennslu og þar með fæðuþörf þorsks! Margar fleiri staðreyndir eru til staðfestingar því að auka þorskveiði. Í Barentshafi er t.d. ný staðreynd að veitt hefur verið a.m.k. 200% umfram ráðgjöf undanfarin ár og þorskstofninn þar fer stækkandi - sem afleiðing aukinnar veiði! Frjósemi fiskistofna virðist vaxa við aukið veiðiálag. Stalín gekk aldrei svo langt að hann léti gera áætlanabúskap fyrir neðan yfirborð sjávar. Áætlanabúskapur ICES er bara kommúnismi, vitlaus kenning á misskildum forsendum. 757 þúsund týnd tonn þorsks á þremur árum (1998-2000) eru til vitnis um þetta. Feigðin í ráðgjöf og einokun ICES birtist í ótal myndum. Hvenær ætla svo fjölmiðlar að fjalla um þetta sem alvarlegt málefni?
Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun