Aðkomu Ólafs hvergi leynt 26. mars 2005 00:01
Samstarfsmenn Ólafs Ólafssonar, aðaleiganda Kers, vísa á bug ásökunum Páls Þórs Magnússonar, framkvæmdastjóra Sunds, um óheilbrigða viðskiptahætti Ólafs í tengslum við fyrrum meðeigendur sína í Keri. Páll sagði í samtali við Fréttablaðið að Ólafur hefði ætlað að sölsa undir sig Olíufélagið Essó. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Essó, segir þessa staðhæfingu alranga. Hjörleifur lýsti áhuga á að kaupa Essó og segist hafa rætt við Ólaf um fjárhagslega aðkomu að málinu til að brúa bil í skuldsetningunni. "Ólafur sagðist vera tilbúinn að skoða það, en vildi engu svara fyrr en hann hefði rætt við meðeigendur sína í Keri," segir Hjörleifur. Hann segir Ólaf hafa komið hreint fram í málinum, en Jóni Kristjánssyni, aðaleiganda Sunds, hafi snúist hugur og frestað öllum viðræðum um sölu. Hjörleifur segir fráleitt að halda því fram að Ólafur hafi verið að reyna að selja sjálfum sér félagið, og samstarfsaðlilum hafi verið fullkunnugt um alla þætti málsins. "Mér finnst því ódrengilega vegið að Ólafi." Jakob Sigurðsson, forstjóri SÍF, segir aðkomu Ólafs að sölu á Iceland Seafood til Sjóvíkur einnig hafa verið þannig að öllum hafi verið fullkunnugt um stöðu Ólafs af málinu. Hann segir Ólaf hafa beðist undan því að taka þátt í afgreiðslu sölunnar vegna fjárhagslegra tengsla sinna við Sund og Jón Kristjánsson. Þetta komi skýrt fram í fundargerðarbók SÍF. "Í framhaldi af þessum fundi hófust samningaviðræður við Sjóvík og tókust samningar sem lagðir voru fyrir stjórnarfund SÍF. Ólafur, Jón og Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers, viku allir af fundi við afgreiðslu málsins." Jakob segir furðu sæta að reynt sé að véfengja söluna því hún hafi verið einstaklega hagstæð fyrir SÍF. Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers, segir að með því að þyrla upp moldviðri sé Páll Þór að beina athyglinni frá gjörðum sínum í stjórn Festingar. "Staðreyndin er sú að fulltrúar tæplega 20 prósenta hluthafa í stjórn Festingar misnotuðu stöðu sína og seldu framkvæmdastjóra félagsins og vini annars stjórnarmannsins til margra ára óútgefið hlutafé félagsins á undirverði til að ná meirhluta," segir Guðmundur. Hann segir að þetta hafi verið gert þrátt fyrir að andstaða eigenda 80 prósenta hlutar hafi legið fyrir. Hann segir framgönguna siðlausa og að Landsbankinn reyni að snúa hlutum á hvolf. "Þeir reyndu fjandsamlega yfirtöku á Keri og telja sig nú vera fórnarlamb."
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Fleiri fréttir Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Sjá meira