Offita gæti bjargað velferðarkerfi 18. mars 2005 00:01
Offita gæti komið velferðarkerfinu til bjargar. Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa komist að því að almannatryggingum og ellilífeyriskerfum sé borgið, þar sem stór hluti offeits fólks deyi ungur og verði því ekki byrði á kerfinu. Víðast hvar í hinum vestræna heimi standa ríkisstjórnir frammi fyrir sama vanda: eldra fólki og öldruðum fjölgar hlutfallslega mikið meira en yngra fólki og því er það ríkjum um megn að fjármagna almannatryggingar, félagsaðstoð og ellilífeyriskerfi. En svo virðist sem vísindamenn í Chicago hafi óvart fundið hugsanlega lausn vandans, sem er þó ekki góð tíðindi fyrir alla. Í grein sem þeir birtu í læknatímaritinu New England Journal of Medicine greina þeir frá því, að allt bendi til þess að offita verði þess valdandi að meðallífaldur Bandaríkjamanna lækki. Hann er nú í sögulegu hámarki, rétt rúm 77 ár og fram til þessa var talið að líf meðaljónsins myndi enn lengjast. Verði ekki breyting á venjum Bandaríkjamanna munu þeir hins vegar áfram fitna og í stað þess að offita lækki meðalaldurinn um fjóra til níu mánuði gæti hún valdið því að meðalaldurinn lækkaði um allt að fimm ár innan hálfrar aldar. Feitir eiga frekar á hættu en aðrir að fá hjartasjúkdóma sem í tengslum við aðra kvilla valda því að feitt fólk lifir ekki jafn lengi og aðrir. Vísindamennirnir segja þetta geta breytt landslaginu hvað velferðarkerfið varðar því að ellilífeyrir þessa fólks falli niður og það sé ekki byrði á kerfinu jafn lengi og þeir sem eldri verða. Aðrir vísindamenn mótmæla þessu og segja feita einfaldlega þyngri byrði á meðan þeir lifa. Hjartasjúkdómar, sykursýki og liðagigt séu mun algengari hjá feitum og það kosti heilbrigðiskerfið dágóðan skilding að sinna þeim. Að auki sé ekki rétt að ganga að því sem gefnu að engin breyting verði á vaxtarlagi Bandaríkjamanna næstu hálfa öld. Mikil áhersla sé nú lögð á heilbrigðari lifnaðarhætti og að enginn hefði látið sér detta í hug árið 1970 að um aldamótin væri víða bannað að reykja.
Erlent Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira