Hækkun vaxta betri nú en síðar 16. mars 2005 00:01
Það kraumar í kötlum efnahagslífsins og nokkrir hitamælanna komnir á rautt. Spurningin um ofhitnun Íslandsvélarinnar var umfjöllunarefni morgunverðarfundar Verslunarráðs í gær. Vilhjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, taldi Seðlabankann hafa staðið sig vel í peningamálastjórninni, en taldi óþolinmæði hafa gætt við síðustu stýrivaxtahækkun bankans. Hann sagði bankann verða að finna hina einu réttu línu með vaxtahækkunum þar sem fyrirtæki í útflutnings- og samkeppnisgreinum séu pressuð til að hagræða en nái á sama tíma að halda uppi nægilegri arðsemi og halda tiltrú lánadrottna sinna. Ekki var þó að heyra á aðalhagfræðingi Seðlabankans, Arnóri Sighvatssyni, að ástæðulaus óþolinmæði hefði ráðið síðustu stýrivaxtahækkunum. Arnór sagði Seðlabankann ekki telja raunstýrivexti sérstaklega háa í sögulegu samhengi. Hann sagði hættu á að án aðhaldssamrar peningamálastefnu nú myndi raungengi sennilega á endanum fara í svipað horf og ef henni væri beitt. Hins vegar yrði verðbólga meiri við óhjákvæmilega aðlögun gengis í framkvæmdalok. Við þær aðstæður þyrfti enn hærri stýrivexti til að halda verðbólgu í skefjum, en ef þeim væri beitt nú. "Af þessum ástæðum hefur Seðlabankinn talið mun ákjósanlegra að glíma við óhjákvæmileg og vissulega óæskileg hliðaráhrif aðhaldssamrar peningastefnu nú fremur en síðar." Seðlabankinn gefur út Peningamál í næstu viku og er þá búist við stýrivaxtahækkun. Hagfæðingar sem rætt var við búast við hækkun á bilinu 0,25 til 0,75 prósentu hækkun stýrivaxta. Sérfræðingar sem Fréttablaðið ræddi við telja að túlka megi orð aðalhagfræðings bankans í þá átt að Seðlabankinn muni hugsanlega hækka vexti á árinu meira en menn hafa almennt verið að spá.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira