Útlit fyrir mjög erfitt ár 15. mars 2005 00:01
Útlit er fyrir að rekstur sjávarútvegsfyrirtækja verði mjög erfiður í ár, meðal annars sökum sterks gengis íslensku krónunnar. Gengi krónunnar hélt áfram að styrkjast í gær . Fram kom í Hálf-fimm fréttum KB banka í gær að raungengi gagnvart Bandaríkjadal hafi ekki verið lægra í þrettán ár og aðrir gjaldmiðlar hafa einnig lækkað hratt gagnvart krónunni. Valdimar Halldórsson hjá greiningardeild Íslandsbanka segir að árið í ár verði erfitt vegna þess hve sterk krónan er nú. Hann segir að útlit sé fyrir að gengið verði áfram sterkt út árið. Í fyrra var afkoma sjávarútvegsfyrirtækja bærileg en þar réð miklu bókhaldslegur hagnaður sökum lækkunar erlendra skulda vegna jákvæðs gengismunar. Valdimar segir ólíklegt að slíkt verði upp á teningnum í ár og því muni reyna á reksturinn. "Þetta verður erfitt ár en það hjálpar sjávarútvegsfyrirtækjunum að verð á sjávarafurðum er hátt. Það vinnur á móti því hversu sterk krónan er," segir hann. Valdimar hefur tekið saman rekstrarniðurstöður sjávarútvegsfyrirtækja í fyrra og þar kemur fram að samanlagður hagnaður þeirra sjávarútvegsfyrirtækja sem skráð eru á markaði var 4,4 milljarðar króna. Stór hluti þessa hagnaðar er hins vegar vegna jákvæðs gengismunar. Í samantekt Valdimars kemur einnig fram að framlegð hjá Vinnslustöðinni var töluvert hærri en hjá öðrum skráðum sjávarútvegsfyrirtækjum í fyrra. Að sögn Valdimars verður þó að taka tillit til ólíkrar starfsemi fyrirtækjanna. .
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira