Mikil aukning í bílainnflutningi 3. mars 2005 00:01
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins voru 2.406 bílar nýskráðir hér á landi. Þetta er 63 prósentum meira en sömu mánuði í fyrra. Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að í heild verði um sextán prósent fleiri nýjar fólksbifreiðar skráðar en á árinu 2004. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Íslandsbanka, segir að nýskráning bíla sé mjög áhugaverð vísbending um þróun efnahagsmála. "Þetta er hitamælir á þjóðarbúið og hefur alltaf verið. Þegar það dregur saman í hagkerfinu þá spara menn sér að endurnýja bíla en ráðast í það þegar það er uppsveifla," segir hann. Reynsla slíðustu ára sýnir að ákveðinn toppur myndast í bílainnflutningi um miðbik eða á síðari hluta efnahagsuppsveiflunnar. Mikil sala var til dæmis árið 1999 en síðan þá dró úr innflutningi fram til ársins 2003. Að mati greiningardeildarinnar er ekki líklegt að innflutningur nýrra bíla verði jafnmikill og árið 1999 en spá hennar gerir ráð fyrir að hann verði svipaður og árin 1998 og 2000. Ingólfur segir að vera megi að aukninguna í nýskráningu bíla megi að hluta rekja til þess að breytingar hafi orðið á fjármögnun bílakaupa. Nú færist mjög í vöxt að einstaklingar geri rekstrarleigusamninga um bíla í stað þess að fjárfesta í þeim beint. Þrátt fyrir þetta telur Ingólfur að tölurnar gefi til kynna að almenn velmegun sé að aukast og það megi meðal annars merkja á því að sala á stórum og dýrum bílum hafi aukist sérstaklega mikið. Nú eru um 190 þúsund bílar skráðir á landinu og þar af er talið að um 145 þúsund fólksbifreiðar séu í notkun. Greiningardeildin bendir á að þar sem um 170 þúsund Íslendingar hafi bílpróf láti nærri að í umferð sé einn bíll á hvert ökuskírteini. "Þetta lýsir ágætlega uppbyggingu hagkerfisins. Landið er strjálbýlt og bílar eru það sem menn nota til ferðalaga. Þetta veldur því að við þurfum á góðum bílaflota að halda," segir Ingólfur. Þá hefur það áhrif á fjölgun nýskráninga að fjöldi ferðamanna fer sívaxandi og margir þeirra notast við bílaleigubíla þegar þeir ferðast um landið.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira