Ég skilgreini! 8. febrúar 2005 00:01 Íraksstríðið - Sigurjón Gunnarsson, Seltjarnarnesi. Samkvæmt öllum stöðlum og hefðum um mannleg samskipti leiðir stríð til dauða, limlestinga, pyntinga, nauðgana, eignatjóns einstaklinga og opinberra aðila. Allt þetta hefur hent í Írak, og hendir enn upp á hvern einasta dag, þó ráðamenn hér á landi telji að innrásinni sé lokið. Þess vegna er skrýtið að enginn hafi tekið þann pól í hæðina: að stríð er morð. Menn ræða um ákvörðun Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar um að styðja innrás bandaríkjamanna og breta inn í Irak, sem vanvirðu við lýðræðið. Þeir hafi ekki borið málið undir þingið og utanríkismálanefnd, en enginn ásakar þá um hlutdeild í morðum, nauðgunum, endalausum sprengju- og stórskotaárásum á Fallujah og aðrar byggðir í Írak. Ég lít svo á að þeir séu þar að verki, engu síður en dátarnir sem þeir studdu að réðust þar til atlögu. Þeir eru því samkvæmt skilgreiningu stríðsmenn, dráparar, pyntarar, og gera líf barna, foreldra og hvers einasta manns sem fyrir verður að hreinasta helvíti! Nú er að vísu komið á daginn, að virtur lögfræðingur segir ákvörðunina um að styðja stríðsrekstur í Írak, hafi verið fyllilega samkvæmt íslenskum lögum. Hvernig má það vera, að annað eins framferði gegn íbúum annars lands geti verið samkvæmt íslenskum lögum, þegar hér á landi má hvorki beita ofbelti né kasta sprengju á fólk og eignir þess? Hvernig getur það verið rétt samkvæmt íslenskum lögum að stuðla að öðru eins ofbeldi? Er það vegna þess að ofbeldið beinist að fólki annars lands? Nei, ekki verður hjá því komist að skilgreina nefnd íslensk lög sem ólög. Ólög, sem undanskilið er að nefna í skjaldarmerki lögreglunnar: "Með lögum skal land byggja..." Og svo er annað, sem sýnir vel tvískinnungshátt íslenskra laga: Hvernig á annars að skilja umræðuna um umhverfismat fyrir smáar og stórar framkvæmdir hér á landi, þegar við samþykkjum að kasta sprengju á borg í Irak? Hefði sú framkvæmd ekki að minnsta kosti átt að fara í grenndarkynningu? Eða má kasta sprengju á borg, ef borgin er í öðru landi? Óþroski þeirra, sem styðja stríð og réttlæta það jafnvel með lögum, kemur hjákátlega fram í því þegar fólki er sagt að staldra ekki við hið liðna: gert er gert, og snúa sér heldur að uppbyggingunni í Írak. Það er sem ég sjái glæpamenn í íslenskum dómssal beita þessum rökum. Hver gerði annars þennan usla, sem nú þarf að bæta fyrir...? Nei, samkvæmt skilgreiningu eru Davíð og Halldór og þeirra stuðningsmenn beinlínis hættulegir fólki víða um heim, því þeir beita kaldrifjuðum vitsmunum sínum, sem eru þó nokkrir, til að stuðla að stríði! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Halldór 18.04.2026 Halldór Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir hinsegin fólk! skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar