Rangar fullyrðingar á Sögu 8. febrúar 2005 00:01 Leigugjöld Félagsbústaða - Sigurður Kr. Friðriksson framkvæmdastjóri Félagsbústaða hf. Í umræðuþáttum á Útvarpi Sögu undanfarna daga hafa komið fram fullyrðingar um fyrirhugaða hækkun á leigu íbúða í eigu Félagsbústaða hf. Þar er því haldið fram að hækkun fasteignamats um síðustu áramót leiði til allt að 20% hækkunar á húsaleigu um þessi mánðarmót. Innan Félagsbústaða hafa engar slíkar umræður átt sér stað og hefði þeim sem setti fram þessar fullyrðingar í umræðuþætti á Útvarpi Sögu fyrir síðustu helgi verið nær að kanna það hjá fyrirtækinu hvort slík hækkun stæði til í stað þess að fullyrða það á öldum ljósvakans. Það er mikill ábyrgðarhluti að koma með fullyrðingar um verulega hækkun á leigu í félagslegu húsnæði án þess að hafa fyrir því staðfestar upplýsingar frá fyrstu hendi. Enda voru viðbrögð leigjenda Félagsbústaða afar mikil á mánudagsmorgun áður en greiðsluseðlar vegna leigunnar bárust þeim í pósti síðar þann sama dag sem staðfestu óbreytta leigu. Ég gef mér ekki að slíkar fullyrðingar séu settar fram til þess að vekja ótta meðal leigjenda Félagsbústaða sem eru lágtekjufólk upp til hópa, öryrkjar og eldra fólk, sem berst í bökkum og munar um hverja krónu til þess að ná endum saman um hver mánaðarmót, heldur sé hér um að ræða fljótræði og misskilning. Sá misskilningur getur átt rætur sínar að rekja til þess að fyrir tveimur árum var útreikningi leigunnar breytt til þess að jafna leigu milli þeirra sem höfðu leigt hjá Félagsbústöðum um árabil og þeirra sem höfðu verið leigjendur um skamman tíma. Leiga þeirra síðarnefndu hafði hækkað samfara verulegri hækkun fasteignaverðs umfram almennt verðlag allt frá árinu 1999 en frá því ári hefur íbúðaeign Félagsbústaða tvöfaldast með kaupum íbúða á almennum markaði. Þessi þróun fasteignaverðs orsakaði umtalsvert misræmi á leiguverði sambærilegra íbúða í eigu fyrirtækisins allt eftir því á hvaða tíma þær voru keyptar. Til þess að leigjendur Félagsbústaða byggju við sambærileg og sanngjörn leigukjör var ákveðið að miða útreikning leigunnar við fasteignamat en matið hafði verið endurskoðað fyrir landið allt og tók gildi í september 2001 með árlegu endurmati . Þessi breyting jók ekki leigutekjur Félagsbústaða heldur jafnaði einungis leiguna innbyrðis milli leigjenda. Frá ársbyrjun 2004 hefur útreikningur leigu við upphaf leigutíma miðast við fasteignamat í árslok 2003 og tekur leigan síðan hækkunum ársfjórðungslega í samræmi við neysluvísitölu og verður svo framvegis. Leiga hjá Félagsbústöðum kemur því ekki til með að hækka samfara síðustu hækkun fasteignamatsins um 20% eins og ranglega hefur verið fullyrt á Útvarpi Sögu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira
Leigugjöld Félagsbústaða - Sigurður Kr. Friðriksson framkvæmdastjóri Félagsbústaða hf. Í umræðuþáttum á Útvarpi Sögu undanfarna daga hafa komið fram fullyrðingar um fyrirhugaða hækkun á leigu íbúða í eigu Félagsbústaða hf. Þar er því haldið fram að hækkun fasteignamats um síðustu áramót leiði til allt að 20% hækkunar á húsaleigu um þessi mánðarmót. Innan Félagsbústaða hafa engar slíkar umræður átt sér stað og hefði þeim sem setti fram þessar fullyrðingar í umræðuþætti á Útvarpi Sögu fyrir síðustu helgi verið nær að kanna það hjá fyrirtækinu hvort slík hækkun stæði til í stað þess að fullyrða það á öldum ljósvakans. Það er mikill ábyrgðarhluti að koma með fullyrðingar um verulega hækkun á leigu í félagslegu húsnæði án þess að hafa fyrir því staðfestar upplýsingar frá fyrstu hendi. Enda voru viðbrögð leigjenda Félagsbústaða afar mikil á mánudagsmorgun áður en greiðsluseðlar vegna leigunnar bárust þeim í pósti síðar þann sama dag sem staðfestu óbreytta leigu. Ég gef mér ekki að slíkar fullyrðingar séu settar fram til þess að vekja ótta meðal leigjenda Félagsbústaða sem eru lágtekjufólk upp til hópa, öryrkjar og eldra fólk, sem berst í bökkum og munar um hverja krónu til þess að ná endum saman um hver mánaðarmót, heldur sé hér um að ræða fljótræði og misskilning. Sá misskilningur getur átt rætur sínar að rekja til þess að fyrir tveimur árum var útreikningi leigunnar breytt til þess að jafna leigu milli þeirra sem höfðu leigt hjá Félagsbústöðum um árabil og þeirra sem höfðu verið leigjendur um skamman tíma. Leiga þeirra síðarnefndu hafði hækkað samfara verulegri hækkun fasteignaverðs umfram almennt verðlag allt frá árinu 1999 en frá því ári hefur íbúðaeign Félagsbústaða tvöfaldast með kaupum íbúða á almennum markaði. Þessi þróun fasteignaverðs orsakaði umtalsvert misræmi á leiguverði sambærilegra íbúða í eigu fyrirtækisins allt eftir því á hvaða tíma þær voru keyptar. Til þess að leigjendur Félagsbústaða byggju við sambærileg og sanngjörn leigukjör var ákveðið að miða útreikning leigunnar við fasteignamat en matið hafði verið endurskoðað fyrir landið allt og tók gildi í september 2001 með árlegu endurmati . Þessi breyting jók ekki leigutekjur Félagsbústaða heldur jafnaði einungis leiguna innbyrðis milli leigjenda. Frá ársbyrjun 2004 hefur útreikningur leigu við upphaf leigutíma miðast við fasteignamat í árslok 2003 og tekur leigan síðan hækkunum ársfjórðungslega í samræmi við neysluvísitölu og verður svo framvegis. Leiga hjá Félagsbústöðum kemur því ekki til með að hækka samfara síðustu hækkun fasteignamatsins um 20% eins og ranglega hefur verið fullyrt á Útvarpi Sögu.
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar