Skoðun

Krabbameinið á Stöðvarfirði

Afleiðingar kvótakerfisins - Sigurjón Þórðarson  alþingismaður Kvótakerfið virðist vera að gera enn eitt strandhöggið í byggðir landsins. Nú er það Stöðvarfjörður sem verður illilega fyrir barðinu á vonlausu fiskveiðistjórnunarkerfi. Á heimasíðu minni www.sigurjon.is má sjá línurit sem sýna svo ekki verður um villst að kerfið hefur engu skilað. Bæði er aflinn nú helmingi minni en fyrir daga kerfisins og einnig er viðmiðunarstofn Hafrannsóknarstofnunar minni en fyrir daga kerfisins. Það er athyglisvert að renna í gegnum útgerðarsögu Stöðvarfjarðar á síðustu 10 árum. Árið 1995 slitnar upp úr samstarfi Stöðfirðinga og Breiðdælinga um rekstur sjávarútvegsfyrirtækisins Gunnarstinds og í kjölfarið kemst Stöðvarfjarðar-hluti fyrirtækisins í eigu hreppsins og fyrirtækja sem tengd eru Framsóknarflokknum s.s. Olíufélagið hf. Essó. Á næstu árum eignaðist KEA fyrirtækið og það rann síðan inn í stórt sameinað sjávarútvegsfyrirtæki Snæfell 1997. Snæfell lenti í brasi með sinn rekstur og gekk þar ekki eftir sú kennisetning að sameinuð sjávarútvegsfyrirtæki væru öflugri og sterkari. Hið sameinaða fyrirtæki varð eins og fleiri sameinuð sjávarútvegsfyrirtæki einungis stærra og skuldugra en ekki batnaði reksturinn. Snæfell sameinaðist fyrir um fjórum árum Samherja. Nú berast þær fréttir af sameinuðum Samherja að reksturinn gangi svo erfiðlega að ekki gangi lengur að vinna fisk á Stöðvarfirði. Lokun landvinnslunnar á Stöðvarfirði er augljós merki um slæmar afleiðingar kvótakerfisins sem er sem krabbamein á landsbyggðinni. Öllu lúmskari eru áhrifin sem kvótakerfið hefur haft í að draga allan þrótt úr Stöðvarfirði sem og öðrum sjávarbyggðunum þ.e. með því að koma í veg fyrir nýliðun í sjávarútvegi. Það hefur valdið bæði stöðnun í atvinnugreininni, jafnvel í sjávarbyggðum þar sem mikill kvóti er skráður til hafnar. Það voru vægast sagt ósmekkleg ummæli sjávarútvegsráðherra Árna Mathiesen sem hann lét hafa eftir sér þegar fréttir bárust af því að Stöðfirðingar misstu atvinnuna og hefðu nánast enga von um að geta sótt björg í sjó vegna handónýts kvótakerfis. Ráðherranum fannst þarna vera komið tilefni til þess að hrósa Samherja fyrir hvernig þeir hefðu staðið að andlátsfrétt fyrirtækisins. Ég tel að ráðherrann eigi að biðjast afsökunar á orðum sínum og aflétta þeim höftum sem hann leggur á atvinnufrelsi Stöðfirðinga. Það myndi öllu breyta á Stöðvarfirði ef íbúar fengju einungis að nýta nálæg fiskimið. Viðbrögð oddvita Samfylkingarinnar, Kristjáns Möller, voru um margt sérstök, en hann kokgleypti þá skýringu Samherja að kenna gengisskráningunni um ástandið á Stöðvarfirði. Auðvitað veit Kristján að kvótakerfinu er um að kenna en samt sem áður forðast hann eins og heitan eldinn að nefna þá staðreynd að kerfið er að kæfa byggðarlagið. Það er orðið löngu tímabært að Kristján Möller geri hreint fyrir sínum dyrum og segi af eða á hvort að hann sé fylgjandi eða andvígur núverandi kvótakerfi. Að lokum er rétt að taka skýrt fram að ekki ber einungis að kenna Samherjamönnum einum um lokun fiskvinnslunar á Stöðvarfirði heldur einnig og miklu frekar við þá stjórnmálamenn sem hafa búið til krabbameinið s.s. Halldór Ásgrímsson sem er guðfaðir kvótakerfisins. Vísasta leiðin til þess að skera æxlið í burtu er að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn en hann mun ganga hreint til verks.



Skoðun

Sjá meira


×