Skoðun

Taka ber upp evruna

Gengismál. - Lúðvík Gizurarson hæstaréttarlögmaður Sagt var frá því í fréttum á dögunum að sjávarútvegurinn tapaði á ársgrundvelli tuttugu miljörðum á of háu gengi krónunnar um þessar mundir. Þessa tuttugu miljarða þarf sjávarútvegurinn að hafa í dag til að geta haldið núverandi 200 miljarða skuld sinni gangandi vegna kvótakaupa. Ef þessa tuttugu miljarða vantar í tekjur eins og er í dag hlaðast risaskuldir sjávarútvegs okkar upp sjórnlaust. Verða óviðráðanlegar. Nú mætti vænta að ríkisstjórnin hefði einhver úrræði um þau ráð til bjargar sem á vantar. Um þau er ekki talað. Í stað þess er rætt um terror aðgerðir gegn sjórnarskrá Íslands. Hún var fyrir mönnum þegar berja átti fjölmiðlalög í gegn í sumar á móti vilja meirihluta landsmanna. Svo kom neitun forseta. Svar stjórnvalda er komið. Nú er sett nefnd í það að hluta núverandi sjórnarskrá í sundur. Sérstaklega á að rústa þau ákvæði stjórnarskrár sem létu vilja meirihluta þjóðarinnar ráða. Afnema þau. Eru fyrir mönnum sem vilja heldur einræðisvald og ofbeldi. Prófessor í hagfræði hefur nýlega komið með þá tillögu í umboði stjórnvalda að við segjum okkur úr EES. Þetta er líka hugsað sem ný terror aðferð gegn þeim fyrirtækjum sem hafa gert það gott í útrás í skjóli EES. Þau mætti lama stórlega með úrsögn úr EES. Samtök iðnaðarins segja þessa hugmynd um úrsögn úr EES glapræði og vanhugsaða. Myndi skaða allan fjölda iðnfyrirtækja. Á bak við er terror hugarfar gegn þeim fyrirtækjum sem ganga vel eins og KB banki og Baugur. Bæði eru orðin hvort um sig á stærð við ríkissjóð og þarna ráða ráðherrar engu ef lög EES gilda og frjáls samkeppni er virt. Þá má koma með terror hótun. Við þurfum að taka upp evruna en þá lækka vextir á Íslandi enn frekar en þessi 4,15% sem KB banki hafði forgöngu um að bjóða fyrstir á húsnæðislánum sínum. Ef evran er tekin upp þá er vísitala á lánum óþörf og verður lögð af. Hún yrði samt reiknuð út vegna eldri lána. Er á þeim í dag. Evran myndi bjarga sjávarútvegi okkar. Framsóknarfokkkurinn ætti að hugleiða nýja ríkisstjórn en þessi núverandi stjórn hefur ekki í dag önnur fyrirheit og stefnumál en að rústa núverandi stjórnarskrá og eyðileggja stærstu fyrirtækin með úrsögn úr EES. Evran komi í þess stað og ný stjórn.



Skoðun

Sjá meira


×