Með lögum skal lamaða kúga 20. janúar 2005 00:01 Lengi skal manninn reyna. Það er næstum lögmál. Einnig má heimfæra það á stjórnmálaflokka. Síðustu misserin hefur R-listinn hagað sér eins og örvinglaður maður í sjálfsmorðshugleiðingum. Hann hamast fyrir allra augum við að grafa eigin gröf. Hroki og yfirlæti gagnvart þeim sem minna mega sín, er farið að einkenna hann. Fólkinu sem setti R-listann í öndvegi í kosningum, er nú vikið til hliðar fyrir annarlegum sjónarmiðum og það talið börn síns tíma. Það er blindur og heyrnarlaus maður sem ekki sér hvað borgarstjórn er að gera öryrkjum og láglaunafólkinu. R-listinn hafði ekki verið lengi við völd, þegar hann sá sér hag í því að gera lamað fólk að gamalmennum við 67 ára aldur. Það helgaðist af lægri greiðslum og því að við að breytast úr lömuðum manni í gamlan, þurfti viðkomandi að borga fyrir heimaþjónustu. Nýlega ákvað borgarstjórn að brjóta stjórnarskrána á gróflegri hátt en Reykvíkingum gat til hugar komið að fulltrúar hennar gerðu. Ferðaþjónustu fatlaðra var bannað að flytja öryrkja eldri en 67 ára. Rökin eru líklega sótt í lög eða reglur um að þjónustunnar njóti eingöngu fatlaðir. Þvílík túlkun á lögum, rangsleitni, grimmd og glámskyggni. Skilningur á mannlegu þáttunum er víðsfjarri hjá borgarstjórn. En það er ekki allt talið. Borgarstjórn hækkaði í skyndi gjöld með ferðaþjónustu fatlaðra um tæpan helming. Hún hefur keypt verri bíla til þjónustunnar og horfir í þeim efnum sem fleirum, vart fyrir fætur sér. Hún hefur stórhækkað gjöld heimaþjónustunnar og þannig gert fólki erfitt að búa heima og forðast stofnanir. Maður gæti haldið að borgarstjórn geri sér far um að skapa öryrkjum svo hörmulega tilveru að þeir deyi úr leiðindum. Sjónarmið út af fyrir sig. Ég hef kynnst fjölda fólks í hjólastólum og öðrum með enn minni möguleika til viðunandi lífshátta. Margt af þessu fólki er þrátt fyrir böl sitt, bjartsýnt og lætur ekki óvinsamleg stjórnvöld slá sig út af laginu. Bregði hjón búi vegna mikillar fötlunar annars þeirra og fari í fjarbúð með aðskilinn fjárhag, eru húsaleigubætur út úr kortinu. Allar smugur eru nýttar til að hafa fé af fötluðum og gera þeim lífið leitt. Ég fullyrði að þeir hafa nóg af erfiðleikum á sinni könnu þó borgarstjórn bæti ekki þar við. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson skrifar Sjá meira
Lengi skal manninn reyna. Það er næstum lögmál. Einnig má heimfæra það á stjórnmálaflokka. Síðustu misserin hefur R-listinn hagað sér eins og örvinglaður maður í sjálfsmorðshugleiðingum. Hann hamast fyrir allra augum við að grafa eigin gröf. Hroki og yfirlæti gagnvart þeim sem minna mega sín, er farið að einkenna hann. Fólkinu sem setti R-listann í öndvegi í kosningum, er nú vikið til hliðar fyrir annarlegum sjónarmiðum og það talið börn síns tíma. Það er blindur og heyrnarlaus maður sem ekki sér hvað borgarstjórn er að gera öryrkjum og láglaunafólkinu. R-listinn hafði ekki verið lengi við völd, þegar hann sá sér hag í því að gera lamað fólk að gamalmennum við 67 ára aldur. Það helgaðist af lægri greiðslum og því að við að breytast úr lömuðum manni í gamlan, þurfti viðkomandi að borga fyrir heimaþjónustu. Nýlega ákvað borgarstjórn að brjóta stjórnarskrána á gróflegri hátt en Reykvíkingum gat til hugar komið að fulltrúar hennar gerðu. Ferðaþjónustu fatlaðra var bannað að flytja öryrkja eldri en 67 ára. Rökin eru líklega sótt í lög eða reglur um að þjónustunnar njóti eingöngu fatlaðir. Þvílík túlkun á lögum, rangsleitni, grimmd og glámskyggni. Skilningur á mannlegu þáttunum er víðsfjarri hjá borgarstjórn. En það er ekki allt talið. Borgarstjórn hækkaði í skyndi gjöld með ferðaþjónustu fatlaðra um tæpan helming. Hún hefur keypt verri bíla til þjónustunnar og horfir í þeim efnum sem fleirum, vart fyrir fætur sér. Hún hefur stórhækkað gjöld heimaþjónustunnar og þannig gert fólki erfitt að búa heima og forðast stofnanir. Maður gæti haldið að borgarstjórn geri sér far um að skapa öryrkjum svo hörmulega tilveru að þeir deyi úr leiðindum. Sjónarmið út af fyrir sig. Ég hef kynnst fjölda fólks í hjólastólum og öðrum með enn minni möguleika til viðunandi lífshátta. Margt af þessu fólki er þrátt fyrir böl sitt, bjartsýnt og lætur ekki óvinsamleg stjórnvöld slá sig út af laginu. Bregði hjón búi vegna mikillar fötlunar annars þeirra og fari í fjarbúð með aðskilinn fjárhag, eru húsaleigubætur út úr kortinu. Allar smugur eru nýttar til að hafa fé af fötluðum og gera þeim lífið leitt. Ég fullyrði að þeir hafa nóg af erfiðleikum á sinni könnu þó borgarstjórn bæti ekki þar við.
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar