Methagnaður hjá Actavis 1. apríl 2005 00:01
Methagnaður varð á rekstri Actavis í fyrra en þá skilaði félagið 63 milljóna evra, 4,9 milljarða króna hagnaði. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins í gær. Hagnaðurinn jókst um 55 prósent frá fyrra ári og þá var 43 prósenta veltuaukning milli ára, en veltan var alls 452 milljónir evra eða 35,3 milljarðar króna, eftir því sem kemur fram í tilkynningu frá Actavis. Fram kom í máli Róberts Wessmanns, forstjóra fyrirtækisins, að félagið horfði til fjárfestinga í félögum í Mið-Evrópu, á Indlandi og í Bandaríkjunum. Ennig væri Japan áhugavert markaðssvæði. Hann sagði enn fremur að mikil samlegðaráhrif fælust í sölu lyfja til Bandaríkjanna og Evrópu. Bandaríkjamenn neyta helmings þeirra lyfja sem framleidd eru í heiminum. Því væri sá markaður afar áhugaverður fyrir félagið. Þá sagði Róbert að félagið hygðist selja vörur undir eigin merki í Bandaríkjunum. Á fundinum kom fram að nokkur félög hefðu bæst í samstæðuna á liðnu ári og að níu lyf hefðu farið á markað á árinu 2004, þar af var Actavis fyrst á markað með fimm þeirra. 60 prósenta vöxtur var í sölu á eigin vörumerkjum og 24 prósenta vöxtur í sölu vara til þriðja aðila. Gert er ráð fyrir að 50 ný lyf fari á markað frá Actavis á þessu ári. Á fundinum var samþykkt að greiða hluthöfum 10 prósenta arð af nafnvirði hlutafjár en það svarar til 5,1 prósents af hagnaði félagsins árið 2004. Þá var samþykkt að veita stjórn félagsins heimild til þess að auka hlutafé um 450 milljónir króna að nafnvirði. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa: Björgólfur Thor Björgólfsson, Andri Sveinsson, Karl Wernersson, Magnús Þorsteinsson og Sindri Sindrason.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira