Framtíð R-listans að ráðast 11. júlí 2005 00:01
Það gæti ráðist á fundi viðræðunefndar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna í dag hvort R-lista flokkarnir bjóða áfram sameiginlega fram fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Hvöss skeyti hafa gengið á milli samfylkingarmanna og framsóknarmanna síðustu daga og virðist Samfylkingin ekki sætta sig við tillögur framsóknarmanna frá því í síðustu viku. Þeir vilja nú fleiri fulltrúa í sinn hlut í ljósi stærðar sinnar í skoðanakönnunum, á kostnað framsóknarmanna eða Vinstri grænna, eða jafnvel beggja. Vinstri grænir leggja hins vegar áherslu á jafnræði milli allra flokkanna og hafa fulltrúar þeirra í nefndinni ekki heimild til að semja um annað. Þá munu framsóknarmenn ekki sætta sig við færri en tvo fulltrúa. Tillögur flokksins eru annars vegar að Samfylkingin fái þrjá borgarfulltrúa og borgarstjórann, Framsóknarflokkurinn fái tvo og Vinstri grænir þrjá, eða að Samfylkingin fái fjóra fulltrúa, Framsóknarflokkur tvo og Vinstri grænir tvo og að borgarstjóri kæmi auk þess úr þeirra röðum. Eftir því sem fréttastofan kemst næst þykir Samfylkingunni hvorugur kosturinn fýsilegur en Vinstri grænir hafa ekki alveg lokað á þessar hugmyndir. Þótt menn bíði spenntir eftir því að málið verði leitt til lykta á fundinum í dag er rétt hugsanlegt að því verði skotið á frest á kostnað umræðu um málefnastefnu R-listans fyrir komandi kosningar, ef samstarfið helst.
Borgarstjórn Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira