Erlent

Kólerufaraldur í uppsiglingu

Yfir tvö þúsund manns hafa greinst með kóleru í Kabúl, höfuðborg Afganistans, undanfarnar vikur og segja erlendir heilbrigðisstarfsmenn að faraldur sé við það að brjótast út verði ekkert að gert. Yfirvöld vísa þessu áhyggjum hins vegar á bug og segja að aðeins sé um slæma magakveisu að ræða. Kólera er alvarlegur hitabeltissjúkdómur sem smitast einkum með menguðu vatni. Kólerusjúklingar fá jafnan heiftarlegan niðurgang sem leiðir til ofþornunar sem að lokum getur dregið fólk til dauða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×