Yfirtökutilboð í Whittard lagt fram 15. desember 2005 10:00 Stjórnarformaður Julian Graves. Pálmi Haraldsson er stjórnarformaður Julian Graves, sem hefur gert yfirtökutilboð Whittard of Chelsea. Julian Graves hefur opnað 90 búðir frá því að íslenskir fjárfestar komu að félaginu.
Breska verslunarkeðjan Julian Graves lagði í gær fram yfirtökutilboð í Whittard of Chelsea, sem rekur te-, kaffi- og gjafavöruverslanir því tengdar. Yfirtökutilboðið hljóðar upp á 21,5 milljónir punda eða sem nemur 2,4 milljörðum króna. Julian Graves rekur 265 verslanir á Bretlandseyjum í miðbæjum borga og verslunarmiðstöðvum. Baugur á sextíu prósenta hlut í Julian Graves, en aðrir eigendur eru Nicholas Shutts, stofnandi Julian Graves, og félög í eigu Jóns Scheving Thorsteinssonar og Pálma Haraldssonar, sem er stjórnarformaður Julian Graves. Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Baugs í Bretlandi segir kaupin bjóða upp á ýmis tækifæri. "Whittard er vel þekkt og rótgróið vörumerki og hér er einstakt tækifæri til að byggja það upp með þeim krafti sem býr í Julian Graves," segir Gunnar. Hann segir að með kaupunum sé verið að fara svipaða leið og gert var með því að sameina Oasis og Karen Millen sem tilheyra nú Mosaic Fashion. "Við erum að byggja upp fyrirtæki sem hafa bolmagn til að vaxa." Hann segist vonast til þess að hluthafar muni taka tilboðinu vel. Nick Shutts, stofnandi Julian Graves, segir tækifærið spennandi og koma þegar fyrirtækið sé að hefja nýtt vaxtarskeið. Stefnt sé að opnun eitthundrað verslana á næstu tveimur til þremur árum. Hann segir tilboðið sýna svart á hvítu kosti þess að hafa Baug Group sem bakhjarl og að hann og hans fólk hefði skort sérþekkingu og bolmagn til að fylgja slíkum kaupum eftir án þess að það ylli truflun á rekstri Julian Graves. Julian Graves selur ýmiss konar lúxusskyndibita, hnetur og þurrkaða ávexti. Gengi bréfa Whittard hefur lækkað mikið undanfarið ár. Stjórn félagsins hefur mælt með því að yfirtökutilboðinu verði tekið og kaupendur hafa tryggt sér stuðning 64 prósenta hluthafa Whittard. Teather and Greenwood, sem er í eigu Landsbankans, stóð að tilboðinu fyrir hönd kaupenda.
Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Sjá meira