Sómi vill kaupa Júmbó 12. október 2005 00:01
Samkvæmt heimildum Markaðarins mun samlokufyrirtækið Sómi leggja fram tilboð í Júmbó samlokur í lok vikunnar. Ef af samruna fyrirtækjanna tveggja verður, eða það færist undir sama eignarhald, má búast við að til verði fyrirtæki sem ekki er óvarlegt að ætla að verði metið á um átta hundruð milljónir króna. Sala á samlokum og tilbúnum brauðréttum hefur aukist mikið undanfarin ár og er velta félaganna tveggja áætluð um sjö hundruð milljónir króna. Talsverður hagnaður hefur verið af rekstri Sóma en minni af Júmbó. Fyrirtækin tvö eru talin hafa langstærstu markaðshlutdeildina á samlokumarkaðnum, um 95 prósent. Matvöruverslanir og bensínstöðvar selja sífellt meira magn af tilbúnum réttum frá fyrirtækjunum, sem hafa aukið og breikkað mjög vörulínu sína síðustu árin. Auk þess að selja samlokur selja þau ýmsa rétti svo sem pastabakka, heilsurétti og fleira. Enda þótt af samrunanum verði ná samkeppnislög ekki til starfseminnar og geta fyrirtækin því sameinast án afskipta samkeppnisyfirvalda. Samkvæmt 17. grein samkeppnislaga getur Samkeppniseftirlitið ógilt samruna ef það telur að markaðsráðandi staða verði til eða myndist en getur auk þess sett slíkum samruna skilyrði. Ákvæðið tekur hins vegar aðeins til samruna þar sem heildarvelta viðkomandi fyrirtækja er einn milljarður króna eða meira. Sómi mun nú vinna að fjármögnun að kaupunum á Júmbó með Íslandsbanka en með samrunanum hyggst fyrirtækið ná fram sparnaði með samlegðaráhrifunum meðal annars í innkaupum, dreifingu og fleiri þáttum. Mikil gróska er nú á sölumarkaði millistórra fyrirtækja og eins og Markaðurinn hefur áður greint frá er ekki óalgengt að fyrirtæki séu seld á sjöfaldan hagnað fyrir afskriftir og fjármagnsliði. >
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira