Viðskipti innlent

Sterling færir út kvíarnar

Skandinavíska flugfélagið Sterling hyggst byrja að fljúga til Bandaríkjanna, Suður-Afríku og Austurlanda fjær en nákvæm tímasetning er þó ekki komin á hreint. Þá hyggst félagið tvöfalda veltuna á næstu tveimur árum. Þetta kemur fram í danska viðskiptablaðinu Börsen. Þá kemur þar fram að flugfélagið hyggst bjóða 30-40 prósentum lægri fargjöld en helsti keppinauturinn, SAS, og munu viðsiptavinir geta keypt farmiða frá allt að 2500 dönskum krónum, eða sem nemur rúmlega 25 þúsund krónum íslenskra, yfir Atlantshafið. Pálmi Haraldsson, annar eigandi Sterling, segir í viðtali við Börsen að Sterling muni koma til með að verða sterkur keppinautur á markaði en til þess þurfi félagið að fjölga áfangastöðum félagsins. Pálmi og Jóhannes Kristinsson keyptu Sterling fyrr á árinu en fyrir eiga þeir saman Iceland Express. Félagið var keypt á fimm milljarða íslenskra króna og flýgur félagið til um 30 áfangastaða, aðallega í Skandinavíu og Suður-Evrópu. Stjórn félagsins hefur sagt að möguleiki sé á að sama bókunarkerfi verði notað fyrir bæði félögin í framtíðinni þannig að viðskiptavinir Iceland Express geti komist á alla áfangastaði Sterling fyrir minna verð en áður. Þá er einnig möguleiki á að félögin verði sameinuð en þó hefur ekkert verið ákveðið í þeim málum. Farþegafjöldi Sterling í fyrra var um 1,8 milljónir en farþegafjöldi Icelandair var 1,3 milljónir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×