Viðskipti innlent

Blæs til sóknar á símamarkaði

Og Vodafone blæs til sóknar á símamarkaði með því að bjóða upp á nýja þjónustu, svokallaða Og1 sem á að stuðla að lækkun á símakostnaði heimila. Í þjónustunni felst meðal annars að gjaldfrjálsar mínútur vegna GSM-símtala í heimasíma og ótakmarkað niðurhal á 4.990 krónur. Þá fær hver heimilissími eða GSM-númer að auki 120 mínútur gjaldfrjálsar mínútur á mánuði í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem Íslendingar eiga mest samskipti við. Upplýsingafulltrúi Símans, Eva Magnúsdóttir, segir Símann vera að skoða málið. Eva segir viðskiptavini hafa tíma til 10. maí til að skoða hver besti kosturinn sé og hvetur hún fólk til að greina vel hvað þeim hentar best hverju sinni. Þá telur upplýsingafulltrúi Símans ástæðulaust fyrir viðskiptavini Símans að hlaupa til og taka tilboði keppinautarins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×