"Hjörleifur" í mörgum 21. janúar 2005 00:01 Kárahnjúkavirkjun - Gréta Ósk Sigurðardóttir, Vaði, Skriðdal Í Fréttablaðinu á laugardaginn fékk Hjörleifur Guttormsson umfjöllun í pistlinum "Maður vikunnar" enda á hann heiður skilinn fyrir sína glæsilegu framgöngu gegn Kárahnjúkavirkjun. Hann hefur aukið okkur sem berjumst gegn þessari virkjun bjartsýni og kjark til að halda baráttu okkar áfram. Þökk sé honum og Atla Gíslasyni lögmanni. Það stakk hinsvegar í augun að Fréttablaðið skyldi í þessari sömu umfjöllun halda því fram að "Austfirðingar upp til hópa séu hlynntir byggingu Kárahnjúkavirkjunar". Ég vil biðja Fréttablaðið að leiðrétta þennan leiða og særandi misskilning. Við erum alls ekki öll ginkeypt fyrir þessum stóriðjudraumi stjórnvalda. Við erum mörg hér bæði á Austurlandi og Austfjörðum – sem erum kölluð Austfirðinga r- mjög mikið á móti þessari virkjun og höfum reynt af veikum mætti að láta mótmæli okkar heyrast sem og að reyna að gera fólki grein fyrir af hvaða stærðargráðu þessi framkvæmd er með fylgjandi spjöllum og neikvæðum áhrifum af sömu stærðargráðu. Við erum mjög áhyggjufull bæði hvað varðar hin stórkostlegu náttúruspjöll og röskun á lífríki og dýralífi sem af byggingu stíflunnar með hinu væntanlegu Hálslóni hljótast sem og þeim áhrifum sem hið væntanlega Hálslón og flutningur Jöklu í Lagarfljót mun valda hér á Héraði með ófyrirsjáanlegum og óviðráðanlegum leirfoksvandamálum sem mjög munu skyggja á lífsgæði okkar hér. Að ekki sé minnst á hin slæmu samfélagslegu áhrif sem svona stórframkvæmd veldur, með ruðningsáhrifum; sem þegar eru byrjuð að segja til sín og því ójafnvægi sem þetta skapar á svo mörgum sviðum. Fjárhagshliðin veldur ekki síður áhyggjum; hvernig geta ráðamenn þessarar þjóðar leyft sér að setja auðlindir okkar á útsölu til erlends auðfyrirtækis að þjóðinni forspurðri; og á svo ef til vill að kenna Austfirðingum um ef illa fer? Það óttast ég að muni einmitt verða reynt og fengum við forsmekkinn af því í Kastljósþætti í sumar þar sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, sagði í þessu sambandi "Austfirðingar sóttu þetta mjög fast". Mun þetta líkast til vera byrjunin á því, þegar ráðamenn þjóðarinnar og þeir sem bera raunverulega ábyrgð á Kárahnjúkavitleysunni vegna þeirrar pólitísku ákvörðunnar sinnar að taka þetta afdrifaríka skref, reyna að koma sér undan þeirri ábyrgð. Orðið "Austfirðingur" er að verða tákn fyrir þann sem vill alvirkja Ísland. "Austfirðingur" er sá sem í framtíðinni mun verða kennt um Kárahnjúkavandann. "Austfirðingar heimtuðu álver", "Kárahnjúkaklúðrið er Austfirðingum að kenna", "Austfirðingar drógu land sitt og þjóð í svaðið...", eða "sjaldan hafa neinir sýnt þjóð sinni jafmikinn hroka og Austfirðingar". Í okkar daglega lífi erum við stöðugt minnt á þennan fjanda sem á sér stað á fjöllum og fjörðum og allt í kringum okkur; og því er það of langt gengið að fjölmiðlar finni sig knúna til að strá salti í sár okkar með því að alhæfa sínkt og heilagt um að "Austfirðingar" séu svo glaðir og reifir því nú séu þeir loksins að fá sitt langþráða álver og að hér ríki bara eintóm gleði... Ég fullvissa ykkur um að þetta er alrangt. Það ríkir myrkur í huga margs góðs Austfirðings það er búið að kollvarpa og umsnúa samfélögum hér og umhverfi; framtíðin er hulin mikilli óvissu; hvað verður um okkur hér fyrir austan vegna þessa gríðarlega inngrips? Víst er að margur Austfirðingurinn hefur látið glepjast af loforðum misvitra og valdasjúkra ráðamanna, en ábyrgðin verður fyrst og síðast þessara hinna sömu ráðamanna. Undan þeirri ábyrgð er ekki nokkur leið fyrir þá að skjóta sér. Minni þeirra mun verða neyðarlegt en gjöldin sem þeir koma sinni þjóð í er ekki hægt að afsaka.Ég vil ekki þurfa að skammast mín fyrir að vera Austfirðingur. En það veit guð að ég skammast mín sem Íslendingur; alveg hroðalega; fyrir okkar ráðamenn sem hafa komið okkur í þetta allsherjar Kárahnjúkaklúður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar