Örvæntingarfullt hjá borgarstjóra 18. mars 2005 00:01 "
Þetta er örvæntingarfullt útspil borgarstjóra nú þegar barnafólk hefur verið að flýja til nágrannasveitarfélaganna vegna hárra skatta, gjalda og lóðarskorts," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hann bendir á að í stjórnartíð R-listans hafi leikskólabörnum í Reykjavík fækkað um fimm hundruð en á sama tíma hafi þeim fjölgað um fimm hundruð í Kópavogi . Guðlaugur Þór telur að þessi áform beri vott um valdabaráttu innan R-listans. Steinunn Valdís komi með þetta útspil til að tryggja stöðu sína. Hann segist eiga eftir að sjá nánari útfærslu á gjaldfrjálsum leikskóla og enn eigi eftir að ræða málið í borgarráði. Þó sé ljóst að miðað við það sem hafi verið kynnt eigi síðustu efndir að koma fram þegar R-listinn verði ekki lengur við völd. Vísar Guðlaugur Þór þá til þess að síðasta skrefið í breytingum á gjaldtöku vegna leikskólanna komi eftir borgarstjórnarkosningarnar á næsta ári. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, segist ánægður með áform R-listans. Hann segist taka undir það með borgarstjóra að leikskólinn eigi að vera almenn grunnþjónusta sem samfélagið eigi að veita án íþyngjandi gjaldtöku.
Borgarstjórn Fréttir Innlent Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira