Skoðun

Ég skilgreini!

Íraksstríðið - Sigurjón Gunnarsson, Seltjarnarnesi. Samkvæmt öllum stöðlum og hefðum um mannleg samskipti leiðir stríð til dauða, limlestinga, pyntinga, nauðgana, eignatjóns einstaklinga og opinberra aðila. Allt þetta hefur hent í Írak, og hendir enn upp á hvern einasta dag, þó ráðamenn hér á landi telji að innrásinni sé lokið. Þess vegna er skrýtið að enginn hafi tekið þann pól í hæðina: að stríð er morð. Menn ræða um ákvörðun Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar um að styðja innrás bandaríkjamanna og breta inn í Irak, sem vanvirðu við lýðræðið. Þeir hafi ekki borið málið undir þingið og utanríkismálanefnd, en enginn ásakar þá um hlutdeild í morðum, nauðgunum, endalausum sprengju- og stórskotaárásum á Fallujah og aðrar byggðir í Írak. Ég lít svo á að þeir séu þar að verki, engu síður en dátarnir sem þeir studdu að réðust þar til atlögu. Þeir eru því samkvæmt skilgreiningu stríðsmenn, dráparar, pyntarar, og gera líf barna, foreldra og hvers einasta manns sem fyrir verður að hreinasta helvíti! Nú er að vísu komið á daginn, að virtur lögfræðingur segir ákvörðunina um að styðja stríðsrekstur í Írak, hafi verið fyllilega samkvæmt íslenskum lögum. Hvernig má það vera, að annað eins framferði gegn íbúum annars lands geti verið samkvæmt íslenskum lögum, þegar hér á landi má hvorki beita ofbelti né kasta sprengju á fólk og eignir þess? Hvernig getur það verið rétt samkvæmt íslenskum lögum að stuðla að öðru eins ofbeldi? Er það vegna þess að ofbeldið beinist að fólki annars lands? Nei, ekki verður hjá því komist að skilgreina nefnd íslensk lög sem ólög. Ólög, sem undanskilið er að nefna í skjaldarmerki lögreglunnar: "Með lögum skal land byggja..." Og svo er annað, sem sýnir vel tvískinnungshátt íslenskra laga: Hvernig á annars að skilja umræðuna um umhverfismat fyrir smáar og stórar framkvæmdir hér á landi, þegar við samþykkjum að kasta sprengju á borg í Irak? Hefði sú framkvæmd ekki að minnsta kosti átt að fara í grenndarkynningu? Eða má kasta sprengju á borg, ef borgin er í öðru landi? Óþroski þeirra, sem styðja stríð og réttlæta það jafnvel með lögum, kemur hjákátlega fram í því þegar fólki er sagt að staldra ekki við hið liðna: gert er gert, og snúa sér heldur að uppbyggingunni í Írak. Það er sem ég sjái glæpamenn í íslenskum dómssal beita þessum rökum. Hver gerði annars þennan usla, sem nú þarf að bæta fyrir...? Nei, samkvæmt skilgreiningu eru Davíð og Halldór og þeirra stuðningsmenn beinlínis hættulegir fólki víða um heim, því þeir beita kaldrifjuðum vitsmunum sínum, sem eru þó nokkrir, til að stuðla að stríði!



Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×