Tæknival hagnast um 608 milljónir 29. mars 2005 00:01
Hagnaður Tæknivals í fyrra var 608 milljónir króna en tap hafði verið á rekstrinum nokkur ár á undan. Árið 2003 var tapið 289 milljónir. Afkomubatann má rekja til þess að í upphafi árs í fyrra seldi Tæknival smásöluverslanir sínar, BT og Office 1, til Skífunnar og námu sölutekjurnar ríflega milljarði króna. Umsvif Tæknivals hafa því minnkað nokkuð á milli ára. Kostnaður í rekstrinum lækkaði til að mynda um ríflega fimmtíu prósent. Sigrún Guðjónsdóttir, forstjóri Tæknivals, segir að stefnt sé að því að reksturinn í ár skili hagnaði. "Það fór heilmikið í kostnað vegna sölunnar og breytingar á rekstri fyrirtækisins og mikið þróunarstarf fór fram," segir Sigrún. Hún segir að ef litið sé framhjá kostnaði og tekjum vegna sölunnar og breytinga í kjölfar hennar hafi reksturinn verið nálægt því að vera "á núllinu" en hún býst við því að hagnaður verði á þessu ári. Hún segir að félagið beini kröftum sínum nú eingöngu að kjarnanum í starfseminni, sem sé þjónusta við fyrirtæki og stofnanir. "Það er eins og það hafi þurft að vekja athygli á því aftur því þessi þáttur starfseminnar hefur kannski fallið í skuggann á síðustu árum." Í Hálf fimm fréttum greiningardeildar KB banka í gær var tilkynning Tæknivals til Kauphallar Íslands gagnrýnd og sagt að ársreikningurinn sjálfur gæfi ekki tilefni til þeirrar umfjöllunar sem félagið sendi frá sér í gær.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira