Hreifst af Ólafi 9. mars 2005 00:01
Einn þeirra sem tók sæti í stjórn Samskipa á aðalfundi félagsins í fyrradag er Flemming R. Jacobs fyrrum forstjóri danska skipafélagsins Mærsk. Jacobs er einnig stjórnarformaður skipafélagisns Neptune Orient Lines. Að sögn Ólafs Ólafssonar, starfandi stjórnarformanns Samskipa, er það stefna hjá Samskipum að fá í auknum mæli utanaðkomandi stjórnarmenn sem geta fært þekkingu inn í fyrirtækið. Hann segir reynslu og sambönd Jacobs koma til með að verða Samskipum dýrmæt. Jacobs segir að hann hafi fylgst með vexti Samskipa á undanförnum árum og hrifist af stefnu félagsins. "Félagið skilar nú góðum hagnaði og er stjórnað af mjög hæfu fólki," segir Jacobs. Hann segist sérstaklega hafa hrifist af Ólafi Ólafssyni stjórnarformanni og þeim áherslum sem hann hefur lagt til grundvallar rekstrinum. "Ólafur leggur áherslu á arðbæran vöxt en einnig það að gefa starfsmönnum færi til að ná árangri og þroskast. Þetta tvennt skiptir mig mjög miklu máli," segir Jacobs. Jacobs hefur setið í stjórnum fjölmargra skipafélaga á um fjörtíu ára ferli í geiranum. Hann er því eftirsóttur til setu í stjórnum fyrirtækja en hann segir að mestu ráði um verkefnaval hvernig honum falli framtíðarsýn forsvarsmanna fyrirtækjanna. "Það eru alltaf áhuginn og neistinn í auga fólksins sem ræður því hvort ég tek að mér svona verkefni. Ég hef séð þennan neista hjá Ólafi Ólafssyni og þess vegna finnst mér gaman að fá að leggja þessu lið," segir Jacobs. Hann segist telja að vöxtur í flutningastarfsemi haldi áfram á næstu áratugum og telur að Samskip hafi færi á að vaxa áfram á þeim markaði.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Góður hárblástur og smink á morgnana á undanhaldi Atvinnulíf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira