Óvíst um lækkun vaxta nýju lánanna 25. ágúst 2004 00:01
Skiptar skoðanir eru um hvort útlánavextir íbúðalána muni lækka mikið meira en nú er þrátt fyrir lækkun ávöxtunarkröfu. Ávöxtunarkrafa á markaði hefur lækkað ávöxtunarkröfu á markaði. Sérfræðingar á markaði gera ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Margir velta því sér hvort vextir af lánum bankanna muni lækka enn frekar. Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunnar, segir að ekki sé sjálfgefið að vextirnir lækki þótt ávöxtunarkrafan fari niður. Við lækkun ávöxtunarkröfu lækki fjármagnskostnaður bankanna vegna skuldabréfaútgáfu. "Hins vegar eru um 70 prósent þess fjár sem bankarnir afla sér háð stýrivöxtum Seðlabankans." Stýrivextir Seðlabankans eru á uppleið og spáð er hækkandi vöxtum í viðskiptalöndum okkar. "Undirliggjandi vextir fara lækkandi en venjulegur íbúðareigandi þarf ekki að verða svo mikið var við það." Tryggvi Þór segist gera ráð fyrir að hörð samkeppni muni áfram ríkja á þessum markaði. "Það sem við erum að sjá eru afleiðingar einkarekins bankakerfis og frelsis á fjármagnsmarkaði. Það var hægt að gera þetta fyrr en þá vantaði viljann. Það má segja að KB banki hafi kastað stríðshanskanum með nýju lánunum." Tryggvi segir að ef Íbúðalánasjóður ákveði að bregðast við af fullum krafti, þá verði erfitt fyrir bankana að keppa við hann. Hann segir að þótt KB banki hafi kannski ekki mikið upp úr lánunum sem slíkum, þá fái bankinn góða umræðu um sjálfan sig í kaupbæti með því að taka frumkvæðið. Tryggvi telur að þessi nýju lán auki á þensluna í samfélaginu, styðji við hækkanir á fasteignamarkaði og auki einkaneyslu. "Þetta hefur áhrif á einkaneysluna, sérstaklega hjá fólki sem keypti í upphafi hækkana á fasteignamarkaði." Hann segir að margir freistist eflaust til að bæta ofan á núverandi skuldir með lánum á lægri vöxtum. "Það kæmi manni ekkert á óvart ef það gerðist."
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira