Aðeins tvö félög hafa hækkað 16. nóvember 2004 00:01
Rólegt hefur verið á hlutabréfamarkaði undanfarna daga en Úrvalsvísitalan hefur sigið upp á við eftir mikla niðursveiflu um miðjan október. Þrátt fyrir að vísitalan hafi hækkað á ný er verð á sumum fyrirtækjum enn mun lægra en það var fyrir rúmum mánuði. Þau fyrirtæki sem lækkað hafa mest eru Landsbankinn, Burðarás og Actavis. Allt eru þetta fyrirtæki sem eru að stórum hluta í eigu Björgólfsfeðga og höfðu Burðarás og Landsbankinn hækkað mjög hratt á haustmánuðum. Matvælaframleiðandinn Bakkavör hefur einnig lækkað um meira en tuttugu prósent. Marel, Íslandsbanki og Medcare Flaga eru öll örlítið lægri en en þau voru 8. október og tvö fyrirtæki hafa hækkað lítillega. "Þetta er eðlilegt í því ljósi að bæði Landsbankinn og Burðarás eiga stórt safn innlendra hlutabréfa. Hvað varðar Actavis þá var síðasta uppgjör hjá félaginu nokkuð undir væntingum," segir Atli B. Guðmundsson hjá greiningardeild Íslandsbanka. Töluverð hreyfing hefur verið á verði hlutabréfa í Actavis en nú er verðið svipað og það var í upphafi árs. Þann 8. október stóð Úrvalsvísitalan í 3.947 stigum en var 3.406 stig í gær. Lækkunin er því um fjórtán prósent. Hún hefur því skipst mjög misjafnlega á fyrirtækin sem mynda Úrvalsvísitöluna. Úrvalsvísitalan er þó enn miklum mun hærri en í upphafi árs. Hækkunin síðan þá er 62 prósent. Þetta er langtum meiri hækkun á hlutabréfamörkuðum í löndunum í kringum okkur. Fjárfestingarfélagið Atorka hefur þrefaldast að verðgildi og Landsbanki, KB banki og Marel hafa tvöfaldast. Sérfræðingar telja að nú kunni að vera góð færi til að kaupa í ýmsum fyrirtækjum sem lækkað hafa á síðustu vikum enda er verð sumra þeirra komið undir verðmat greiningardeilda bankanna.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira