20 milljarða hækkun 30. september 2004 00:01
Burðarás, Landsbanki, Íslandsbanki og Straumur hækkuðu í verði um tuttugu milljarða króna í viðskiptum í Kauphöll Íslands í gær. Þessi félög koma við sögu í samningum sem gerðir voru í fyrradag og tryggðu Burðarási, Landsbankanum og Landsbankanum Luxembúrg, stóran hlut í Straumi og Straumi tæplega fimmtán prósent hlut í Íslandsbanka. Aldrei hafa verið meiri viðskipti í Kauphöll Íslands. Viðskipti með hlutabréf voru 748 talsins. Umfang viðskipta í Kauphöllinni nam 37,4 milljörðum króna. Gamla metið var sett 19. september í fyrra. Þá námu viðskiptin um 31 milljarði króna. Úrvalsvísitalan hefur heldur aldrei verið hærri en nú. Hún fór yfir 3.800 stig í fyrsta sinn og hefur hækkað um 98 prósent frá því á sama tíma og í fyrra. Atburðarásin minnir mjög á það sem átti sér stað fyrir rúmu ári þegar fjárfestingarfélagið Straumur, sem nú er orðinn fjárfestingarbanki, var í hringiðu viðskipta sem meðal annars fluttu yfirráð yfir Eimskipi í hendur Björgólfsfeðga. Það var einmitt þá sem gamla metið í magni viðskipta í Kauphöll Íslands var sett. Sérfræðingar á hlutabréfamarkaði telja verðhækkun fjármálafyrirtækja fela í sér miklar væntingar um hagræðingu í rekstri. Þar hefur oftast verið talað um sameiningu Landsbanka og Íslandsbanka. Hins vegar liggur beinast við nú eftir kjölfestufjárfestingu Straums í Íslandsbanka að þau fyrirtæki verði sameinuð. Stórviðskiptin með bréf í þessum félögum í fyrradag hafa sett Landsbankamenn í lykilstöðu en jafnframt hafa möguleikar Íslandsbanka til að ráða ferðinni í hugsanlegum samruna við önnur fyrirtæki minnkað. Það sem af er ári hafa íslensku bankarnir hækkað hratt í verði. Landsbankinn hefur hækkað um 141 prósent og KB banki um 118 prósent. Gengi á bréfum Íslandsbanka hefur hækkað um 86 prósent. Á síðustu tólf mánuðum hefur undirvísitala í Kauphöllinni sem mælir fjármála- og tryggingafyrirtæki hækkað um 131 prósent síðustu tólf mánuði og hefur meira en tvöfaldast frá áramótum. Eftir viðskiptin í gær hafa Björgólfsfeðgar veruleg áhrif í fimm af tíu verðmætustu fyrirtækjum í Kauphöllinni. Þeir ráða för í Actavis, Landsbanka og Burðarási. Burðarás, Landsbankinn og Landsbankinn Luxembúrg ráða svo tæpum fjórðungi í Straumi og Straumur er kjölfestufjárfestir Íslandsbanka.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira