Vilja nýjan úrskurð 25. nóvember 2004 00:01
Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) hafa áfrýjað úrskurði Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að fyrirhuguð níutíu prósenta lán á vegum sjóðsins standist samkeppnisreglur á Evrópska efnahagssvæðinu. Bankarnir draga í efa að ákvörðunin hafi verið rétt og benda á að staða Íbúðalánasjóðs sé einsdæmi miðað við nágrannalöndin. Ein forsenda úrskurðar ESA er sú að Íbúðalánasjóður veiti félagslega þjónustu en bankarnir telja aðgerðir Íbúðalánasjóðs á síðustu vikum bendi eindregið til þess að sjóðurinn sé í beinni samkeppni við bankanna. Þetta telja bankarnir að stríði gegn reglum á Evrópska efnahagssvæðinu sem koma eiga í veg fyrir ríkisstuðning við fyrirtæki í samkeppnisrekstri. Í nýlegri könnun á vegum SBV kemur fram að 22,3 prósent svarenda hyggist ætla að taka annað hvort ný lán hjá bönkum og sparisjóðum eða endurfjármagna lán sín á næstu sex mánuðum. Sé þetta rétt má gera ráð fyrir að á fimmta tug þúsunda Íslendinga hafi í hyggju að gera breytingar á fjármögnun íbúðarhúsnæðis. "Við teljum að Íbúðalánasjóður sé í grímulausri samkeppni við bankana. Þetta hefur sést á viðbrögðum sjóðsins við þessum breyttu aðstæðum. Könnunin sem við gerðum sýnir skýrt að það er tímabært fyrir ráðamenn að setjast niður og skoða leiðir til að breyta eðli Íbúðalánasjóðs svo hann sinni þeim tilgangi sem upphaflega var farið af stað með; að veita félagsleg húsnæðislán," segir Guðjón Rúnarsson hjá SBV. Ekki er gert ráð fyrir niðurstöðu fyrr en í fyrsta lagi um mitt næsta ár.
Mest lesið Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Sjá meira