Flugeldaverð aldrei hagstæðara 27. desember 2004 06:00 Lúðvík Georgsson hjá KR flugeldum.
Innflytjendur og seljendur flugelda hófu undirbúning áramótasölunnar fyrir mörgum mánuðum. Fyrstu drög voru raunar lögð fyrir tæpu ári því pantað er á vormánuðum eftir umfangsmiklar markaðsathuganir þar sem þörfin er metin. "Þó álagið sé einn mánuður á ári er þetta hlutur sem þarf að huga að allt árið um kring," segir Lúðvík Georgsson hjá KR-flugeldum. KR-flugeldar er umsvifamikið fyrirtæki í innflutningi flugelda og selur þá í heildsölu til fjölmargra íþróttafélaga og fleiri útsöluaðila. Flugeldaumsýsla Slysavarnafélagsins - Landsbjargar er einnig risavaxin og þar hafa menn haft í nægu að snúast frá byrjun mánaðar þegar gámarnir komu til landsins. "Við höfum verið í talningu, pakkningu og dreifingu frá því um mánaðarmót," segir Friðfinnur Guðmundsson hjá Landsbjörg. Bróðurpartur flugelda og annars sprengiefnis sem kveikt er í á gamlárskvöld kemur úr austurvegi. "Kína er jú fæðingarland flugeldanna en við kaupum líka talsvert frá Þýskalandi. Þjóðverjarnir búa enn þá til bestu rakettur í heimi og vönduðustu stjörnuljósin," segir Lúðvík KR-ingur. Friðfinnur Guðmundsson hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.Vísir/ValliHann lofar nýjungum í ár, segir kökurnar hafa þróast og sjá megi ljósin sveipast um himininn eins og rúðuþurrkur eða tjaldhurð sem opnast neðan frá. Friðfinnur er hins vegar varkárari þegar talið berst að nýjungum. "Þegar menn segjast vera með nýjungar í ljósum og hljóðum þá tek ég því með varúð. Umbúðir og útlit breytast alltaf eitthvað en ég er efins með hitt." Hvað sem því líður er ljóst að flugeldakaupin í ár ættu að vera vinveitt veskinu, verðið ætti að standa í stað frá í fyrra eða jafnvel lækka. "Verðþróunin hefur verið samfellt niður á við frá því það fór í skelfilegar hæðir árið 2001. Kínverska varan hefur lækkað um fimm til tíu prósent út af hagstæðu gengi Bandaríkjadals," segir Lúðvík. Friðfinnur tekur undir þetta en bendir á að innkaupin hafi verið gerð í vor þegar dalurinn var töluvert hærri en hann er í dag. "Verðið verður það sama eða lægra, það hækkar allavega ekkert." Athuganir leiða í ljós að flugeldar voru fluttir til landsins í um 30 stórum gámum og ætti ljósadýrðin á himninum að geta orðið talsverð. Ekki spillir að verðið er hagstætt, jafnvel hagstæðara en nokkru sinni ef marka má upplýsingar viðmælenda. Það er því ekki annað að gera en vona að veðrið verði til friðs.
Innlent Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira