Athugasemd frá Íbúðalánasjóði 26. júlí 2004 00:01
Íbúðalánasjóður vill koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri vegna ummæla Guðjóns Rúnarssonar, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja á fjölmiðlavefnum visir.is mánudaginn 26. júlí. Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri SBV reynir á fjölmiðlavefnum visir.is þann 26. júlí að klóra sig út úr athugasemdum sem hann sendi Íbúðalánasjóði þann 14. júlí og Íbúðalánasjóður hefur sýnt fram á að hafi verið unnar "með afar ófaglegum og illa undirbúnum hætti" svo notað sé orðalag Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. Guðjón heldur því fram að Íbúðalánasjóður misskilji kjarnann í athugasemdum SBV og segir: "...Kjarni málsins sem við bendum á í bréfi er sá að sökum ófaglegra vinnubragða og ónægrar kynningar báru margir smæirr fjárfestar skarðan hlut frá borði. Þar er fyrst og fremst um að ræða fjölda einstaklinga í landinu sem á húsbréf en missti af þessu þriggja daga tímabili sem hann hafði til skiptanna." Í ljósi þessarar ummæla framkvæmdastjóra SBV telur Íbúðalánasjóður rétt að birta ásakanir framkvæmdastjóra SBV í bréfi til ÍLS, en um þetta atriði segir orðrétt í bréfi SBV: "Fyrir það fyrsta var sá frestur sem markaðsaðilum var gefinn til að undirbúa skiptin allt of skammur, auk þess sem skiptin voru dagsett á mjög óheppilegum tíma þegar hálfsársuppgjör markaðsaðila fara fram og á hásumarleyfistíma. Einnig mátti Sjóðnum vera ljóst hve mikið var enn órafvætt af útgefnum flokkum, sem kalla á gríðalega aukna vinnu við skiptin." Í athugasemd Íbúðalánasjóðs segir að ekkert sé minnst á almenning í þessari athugasemd, heldur vísað til markaðsaðila sem þurfa að vinna hálfsársupgjör. Þá segir að allir fjárfestar stórir og smáir hafi mátt vita að skiptin færu fram fyrir 1. júlí 2004. Sú vitneskja hefði átt að liggja fyrir frá 31. desember 2003 eins og Íbúðalanasjóður hefur bent á. Loks segir í athugasemd Íbúðalánasjóðs; "Vinnubrögð Íbúðalánasjóðs voru fagleg og kynning veruleg eins sjóðurin hefur sýnt fram á í svarbréfi sínu til SBV. Þá má geta þess að einungis 6% húsbréfa í þeim flokkum sem boðið var til skipta hafði ekki verið rafvæddur fyrir skiptin svo staðhæfing um að mikið hafi verið órafvætt er staðlaus með öllu eins og flest þau atriði sem SBV kvartaði um í bréfi sínu."
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira