Ný kjölfesta í Iceland Express 22. október 2004 00:01
Jóhannes Kristinsson mun eignast meirihluta í Iceland Express. Samkomulag hefur náðst við núverandi eigendur um aðkomu hans að félaginu. Nýtt hlutafé verður gefið út og ný stjórn skipuð þegar áreiðanleikakönnun lýkur. Búist er við að það verði í næstu viku. Að sögn Ólafs Haukssonar, talsmanns Iceland Express, mun þetta styrkja fjárhagsgrundvöll félagsins auk þess sem Jóhannes mun færa félaginu þekkingu og reynslu af áratuga starfi sínu í flugrekstri bæði hér á landi og erlendis. "Þetta er maður sem þekkir flugrekstur ákaflega vel. Það er mikill styrkur af honum ekki bara fjárhagslega heldur einnig reynsla hans og þekking," segir Ólafur. Jóhannes segir að fyrsta markmið hans sé að styrkja stoðir núverandi rekstrar Iceland Express frekar en að fjölga áfangastöðum eða auka tíðni. "Það er númer eitt að festa stoðir undir það sem er fyrir hendi og tryggja örugga ferðatíðni og fjárhagsstöðuna undir fyrirtækinu," segir hann. Þá segist hann gera þá kröfu að bætt verði úr þeim vandmálum sem komið hafa upp varðandi tafir. "Ég er búinn að vera lengi í þessu og það er krafa frá mér að það lagist," segir hann. Jóhannes er stjórnarformaður Fengs sem átti stóran hlut í Flugleiðum. Hann segist lengi hafa haft áhuga á Iceland Express en ekki verið í aðstöðu til að koma að rekstirnum fyrr en nú. "Ég hef trú á þessu og tel að félagið hafi mikla möguleika," segir Jóhannes Kristinsson.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira