Pútín grefur undan réttarríkinu 31. desember 2004 00:01 Á Þorláksmessudag birtist leiðari í Morgunblaðinu um mál rússneska auðjöfursins Míkhaíl Khodorkovskí. Morgunblaðið undrast þá gagnrýni sem Pútín Rússlandsforseti hefur fengið vegna málsins og telur að handtaka hans hafi verið þáttur í því að "koma á lögum og reglum í Rússlandi". Flest dagblöð á Vesturlöndum hafa gagnrýnt Pútín harkalega fyrir meðferðina á Khodorkovskí, sem var handtekinn í október á síðasta ári og hefur síðan þá þurft að dúsa í fangelsi þangað til réttarhöld yfir honum hefjast. Morgunblaðið er ekki á meðal þessara dagblaða. Öðru nær. Leiðarahöfundur þess furðar sig á þeim viðbrögðum sem mál Khodorkovskís hefur valdið og spyr hvort „verið [sé] að halda því fram, að rússnesk stjórnvöld megi ekki taka á skattsvikum heima fyrir? Er verið að halda því fram, að erlendir fjárfestar fáist ekki til að fjárfesta í rússnesku atvinnulífi nema tryggt sé að þeir geti stundað þar skattsvik að vild?" Stutta og einfalda svarið við báðum þessum spurningum væri nei. En mál Khodorkovskís er hins vegar mun flóknara en svo að hægt sé að stilla þessu upp á þennan hátt. Það þarf að skoða málið í stærra samhengi við aðra atburði í stjórnartíð Pútíns. Sjálf skattsvikin, sem Khodorkovskí er sakaður um, voru aldrei raunverulegu ástæður handtökunnar. Enginn hefur haldið því fram að Khodorkovskí sé dýrlingur. Ekki fremur en aðrir svokallaðir "ólígarkar" í Rússlandi, sem fengu helstu eignir rússneska ríkisins nánast gefins í óréttlátri einkavæðingu fyrir um tíu árum síðan. En ef það er erfitt að verja Khodorkovskí og "ólígarkana", þá er enn erfiðara að halda vörnum fyrir þeirri aðferð sem Pútín hefur beitt til að leiðrétta það óréttlæti sem kom þeim í þá stöðu sem þeir eru í dag - aðferðin er sú versta sem hægt var að hugsa sér. Í stað þess að auka tiltrú erlendra aðila á að Rússland sé réttarríki hefur Pútín þvert á móti grafið undan því með þessum aðgerðum. Almennar leikreglur í atvinnulífinu eru óskýrari en áður og mörg fyrirtæki hafa keppst við að framkvæma margvíslegar hugmyndir, eingöngu vegna þess að þau halda að þær séu Pútín þóknanlegar. Það sem leiðarahöfundur Morgunblaðsins virðist vilja gera, er að fjalla um mál Khodorkovskís algerlega eitt út af fyrir sig. Khodorkovskí hafi brotið lög með því að svíkja undan skatti og því er ekkert athugavert við það að Pútín geri ráðstafanir til að stöðva það, að mati Morgunblaðsins. En með því að horfa á þetta út frá þessu eina sjónarhorni, er aðeins hálf sagan sögð – og varla það. Það sem mál Khodorkovskís endurspeglar er angi af stærra máli, sem er allsherjaráætlun Pútíns um að ná öllum völdum í Rússlandi. Og Khodorkovskí var hindrun í átt að því – þess vegna þurfti hann að fara. Þetta er að takast, að mati Michael McFaul, Nikolai Petrov og Andrei Ryabov sem eru sérfræðingar um málefni Rússlands og eru höfundar að bókinni Between Dictatorship and Democracy: Russian Post-Communist Political Reform sem kom út á þessu ári. Niðurstaða þeirra er sú, að á þeim fjórum árum sem Pútín hefur verið við völd, hafi hann á kerfisbundinn hátt náð að veikja hinar lýðræðislegu stofnanir í landinu - sem hafi nú ekki verið beint burðugar fyrir. Þetta hefur hann gert með því að „veikja eða eyða öllu því sem gæti hindrað vald hans, og á sama tíma styrkt getu ríkisvaldsins til að brjóta á stjórnarskrárbundnum réttindum borgaranna." Áætlun Pútíns hófst í Tsjetsjeníu. Í augum Pútíns er það stríð prófsteinn á mátt Rússlands sem stórveldis. Allt það stríð hefur sýnt hversu litla virðingu Pútín ber fyrir mannréttindum. Næst var það sjónvarpið. Til þess að ná tökum á því þurfti hann að koma einum nánasta samstarfsmanni sínum frá völdum, Boris Berezovsky, sem stjórnaði einni stærstu einkareknu sjónvarpsstöðinni og hafði stofnað flokk Pútíns; United Russia. Hann er nú í útlegð í Bretlandi. Nú er svo komið að Pútín ræður yfir öllum þremur sjónvarpsstöðvunum sem einhverju máli skipta. Eftir sjónvarpið var svo komið að héraðshöfðingjunum. Meðal annars bjó Pútín til sérstök embætti sem höfðu yfirvald yfir framkvæmdavaldinu í héruðunum og skipaði sína menn í þessi embætti. Þannig fékk hann heilmikil áhrif á það hverjir sitja í kjörstjórnum og þar með hverjir fái að bjóða sig fram. Í fjórða lagi voru það þeir "ólígarkar" sem storkuðu stjórnvöldum í Kreml. Árið 2000 benti ekkert til þess að Pútín myndi hafa einhver afskipti af Khodorkovskí. En um leið og hann fór að sýna einhver merki um að hann hefði aðrar skoðanir en Pútín og hyggði jafnvel á forsetaframboð eftir að kjörtímabili Pútíns lyki, þurfti að grípa til einhverra aðgerða. Khodorkovskí var því handtekinn. Það er mikilvægt að horfa til allra þessara aðgerða í heild sinni, til að átta sig á hvað Pútín er að gera. Allt snýst þetta um að veikja þá aðila sem eru ógn við Pútín. Og þannig á einnig að horfa á aðgerðir hans gagnvart Khodorkovskí, en ekki hvort hann hafi gerst sekur um skattsvik. Það er rangt hjá leiðarahöfundi Morgunblaðsins að halda því fram að mál Khodorkovskís hafi eitthvað með það að gera að Pútín sé að "koma á lögum og reglum í Rússlandi." Heldur sýnir það okkur fremur, að skref fyrir skref, hefur Pútín náð öllum valdaþáttunum í sínar hendur. Og það, að aðeins Pútín taki ákvörðun um það hvernig stjórnarfar Rússland muni hafa, boðar ekki gott fyrir framtíð lýðræðis í landinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Sjá meira
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun