Annáll viðskiptalífsins 2004 30. desember 2004 00:01
Árið 2003 var ár uppstokkunar í eignarhaldi íslensks viðskiptalífs og angar þeirra hræringa teygðu sig inn í árið 2004. Ársins 2004 verður þó fremur minnst fyrir útrás íslensks viðskiptalífs, en nokkur stór skref voru tekin í útrásinni á árinu. Íslandsbanki auglýsti af miklum krafti við upphaf ársins gengisbundin húsnæðislán. Kynning bankans á þessum lánum markaði upphaf innrásar bankanna á íbúðalánamarkað. Í árslok er landslagið á lánamarkaði gjörbreytt frá því sem það var í upphafi árs. Íslenskum almenningi stendur nú til boða lán á lægri vöxtum en áður hefur þekkst hér á landi. Heimamannahasar Strax í byrjun árs hófu eigendur Landsbankans að vinna úr þeim eignum sem féllu þeim í skaut á haustmánuðum. Sala sjávarútvegshlutans, Brims, hófst þegar í janúar. Það söluferli var ekki án árekstra. Innan hópsins var tekist á um leiðir. Magnús Gunnarsson, stjórnarformaður Eimskipafélagsins, man tímana tvenna í viðskiptalífinu. Hann vildi taka tillit til heimamanna á hverjum stað við söluna, án þess að arðsemissjónarmið vikju. Bankastjóri Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason, er af annarri kynslóð og var ófeiminn við að stíga á tær ef svo bar undir. Mestu lætin urðu í söluferli Skagstrendings, þar sem heimamenn töldu Sigurjón ætla að valta yfir sig. Við lokafrágang viðskiptanna kröfðust heimamenn þess að Sigurjón héldi sig fjarri. Akureyringar kættust lítt þegar ljóst varð að Guðmundur Kristjánsson frá Rifi á Snæfellsnesi myndi kaupa Útgerðarfélag Akureyringa. KEA hafði boðið í ÚA, en boðið þótti of lágt til þess að heimamannarök gætu réttlætt að selja þeim það á því verði. Salan á Haraldi Böðvarssyni gekk hins vegar betur fyrir sig, þótt tekist væri á. Grandi keypti HB ásamt fjölskyldu Haraldar Böðvarssonar. Úr því varð stærst útgerðarfyrirtæki landsins. Eftir viðskiptin var það mál manna að reynt hefði á alla kosti Magnúsar Gunnarssonar sem þekktur er fyrir að geta náð ásættanlegri niðurstöðu milli ólíkra manna og málefna. Magnús var ekki samstíga helstu eigendum Eimskipafélagsins varðandi framtíð þess. Hann vildi skipta félaginu í tvö félög - Burðarás og Eimskipafélag Íslands. Niðurstaðan varð sú að Eimskipafélagið varð dótturfélag Burðararáss og Ingimundur Sigurpálsson lét af störfum sem forstjóri. Innrás á húsnæðislánamarkað Stóru sölufyrirtækin í sjávarútvegi SH og SÍF voru í sviðsljósinu. Sameining félaganna hafði lengi verið áhugamál bankanna og stórra eigenda. SÍF keypti fimmtungshlut í SH og setti tvo menn í stjórn. Endir var bundinn á vangaveltur um sameiningu fyrirtækjanna þegar SÍF tók frumkvæði, seldi hlut sinn í SH og keypti franska fyrirtækið Labeyrie í októberlok. Þar með skipti SÍF um kúrs og ljóst að sameining við SH var endanlega út úr myndinni. Alþingi stöðvaði kaup KB banka á SPRON með lagasetningu. Lögin voru, og eru, umdeild og margir þeirrar skoðunar að sparisjóðir muni eiga erfitt uppdráttar í aukinni samkeppni á fjármálamarkaði. Innkoma bankanna á íbúðalánamarkað þykir gera stöðu sparisjóðanna enn erfiðari. KB banki lækkaði vexti af íbúðalánum í 4,4 prósent í lok ágúst og hratt með því af stað harðri samkeppni bankanna við Íbúðalánasjóð. Íbúðalánasjóður svaraði með því að lækka sína vexti. Sjóðurinn fékk einnig heimild til að veita 90 prósenta lán til íbúðakaupa. Íslandsbanki svaraði með því að bjóða 100 prósent lán. Íbúðakaupendum dagsins í dag bjóðast því 100 prósent lán á 4,15 prósenta vöxtum. Ekki verður séð fyrir endann á baráttu á íbúðalánamarkaði, en jafnljóst að fjármálafyrirtæki eru misjafnlega í stakk búinn til að takast á við samkeppnina. Fjármálaeftirlitið lýsti yfir áhyggjum af því að sum fjármálafyrirtæki hefðu ekki undirbúið sig nægjanlega vel varðandi þessi útlán og boðar eftirlitið að fylgst verði með eiginfjárstöðu og styrk fjármálafyrirtækja á komandi ári. Hörður hættir Nýr banki bættist í hópinn þegar Straumur fékk bankaleyfi. Straumur varð áberandi í hræringum viðskiptalífsins árið á undan þegar Landsbankinn og Íslandsbanki bitust um völdin. Straumur valdaði mikilvæga reiti á skákborði uppstokkunar á eignarhaldi nokkurra stærstu fyrirtækja landsins. Janúar var ekki úti þegar Straumur var búinn að selja stærstu eign sína úr uppgjöri ársins á undan. Hannes Smárason og Jón Helgi Guðmundsson keyptu hlut Straums í Flugleiðum. Fyrir voru í hluthafahópnum Baugur og Fengur, félag Pálma Haraldssonar. Leiðir Hannesar og Jóns Helga skildi og Hannes keypti hlut Jóns Helga í Flugleiðum. Áður höfðu Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson gengið úr stjórn eftir að hafa selt sína hluti. Hannes Smárason fer nú í forystu Flugleiða. Meðal áherslubreytinga sem má greina með innkomu hans er frekari þátttaka í fjárfestingum. Þar ber hæst kaup Flugleiða á hlut í lággjaldaflugfélaginu easyJet. Á aðalfundi Flugleiða lét Hörður Sigurgestsson af störfum fyrir félagið eftir áratuga starf. Með því hætti hann beinum afskiptum af íslensku viðskiptalífi eftir áratuga setu sem einn áhrifamesti einstaklingurinn í íslensku viðskiptalífi. Fleiri voru á flugi. Magnús Þorsteinsson, viðskiptafélagi Björgólfsfeðga bætti við eign sína í Atlanta og stjórnar félaginu. Atlanta og Íslandsflug voru sameinuð og úr varð sterkt leiguflugfélag með flugflota sem er með helstu gerðir flugvéla háloftanna. Í hópnum er einnig Excel Airways. Í október var tilkynnt að fyrirtækin myndu starfa undir sama hatti. Avion er nafn móðurfélagsins sem stefnt er á markað þegar stærstu eigendur telja hagstæðan tíma fyrir skráningu. Líklegt er að af því gæti orðið með vorinu. Lyf og hlutabréfaheilsa Annað félag sem stefnir að skráningu er Actavis. Þar er stefnan sett á Kauphöllina í London. Tilkynnt var um frestun skráningar fram á næsta ár. Ástæðan var sögð sú að alþjóðleg reikningsskil verða tekin upp í Bretlandi á næsta ári, eins og hér. Ef skráning hefði orðið fyrir áramót hefði Actavis þurft að færa bókhald sitt samkvæmt breskum reikningsskilavenjum þrjú ár aftur í tímann. Actavis hóf árið með miklum hvelli þegar sex breiðþotur hófu sig á loft með lyf félagsins sem var á leið á markað í Evrópu. Verðmæti farmsins var 2,6 milljarðar. Félagið hafði verið hástökkvari ársins 2003 á hlutabréfamarkaði og eymdi eftir af spennunni í kringum félagið. Bréf félagsins hækkuðu um tvöfalt verðmæti farmsins eftir að fréttirnar birtust. Spennan í kringum Actavis fór minnkandi á árinu og frá áramótum hefur gengi hlutabréfanna lækkað. Ef Actavis var gleðigjafi spákaupmanna árið 2003, þá voru bankar og fjárfestingarfélög í uppáhaldi þetta árið. Atorka, Straumur, Burðarás og bankarnir um það bil tvöfölduðu gengi bréfa sinna. Atorka þrefaldaði það reyndar. Auk þess hækkuðu Jarðboranir hraustlega á árinu. Hlutbréf hækkuðu stöðugt fram eftir ári og urðu raddi þess efnis að eignabóla væri á ferðinni sífellt háværari eftir því sem leið á árið. Það fór svo að lokum að markaðurinn slóst í hóp hinna svartsýnu og verð hlutabréfa tók að lækka í lok október. Við tók samfelld ellefu daga lækkun sem er met í Kauphöllinni. Það fór um miðlara og fjárfesta. Enginn sá til botns og ýmsir óttuðust að skuldsettir eigendur hlutabréfa myndu nú súpa seiðið af dirfsku sinni og fá skell. Stærstu fjárfestarnir virtust þó halda að sér höndum og lækkunin staðnæmdist. Gengishagnaður og útrásarvon Mál manna var að smærri fjárfestar hefðu séð sitt óvænna og stokkið af vagninum þegar lækkunarferlið hófst. Á ellefta degi mátti heyra á nokkrum þeim sem höfðu talið verð hlutabréfa hátt og ástæðu til leiðréttingar að greina mætti kauptækifæri í nokkrum félögum eftir lækkunarhrinuna. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands náði hæsta gildi 3.947 þann 8. október. Hún er talsvert frá því gildi nú og enginn veit hvenær 4.000 stiga múrinn verður rofinn. Uppstokkun á eignarhaldi íslenskra fyrirtækja kynti undir hækkun hlutabréfaverðs í upphafi árs. Við hækkanir myndaðist gengishagnaður í bönkum og fjárfestingarfélögum sem hvert á fætur öðru skiluðu methagnaði. Sá methagnaður varð svo aftur til þess að auka kæti manna og hækkuðu bréf fjármálafyrirtækja aftur sem aftur leiddi til gengishagnaðar. Þá er gaman að lifa. Valdabarátta og væntingar um hagræðingu á fjármálamarkaði ásamt trú manna á framtíð útrásar íslenskra fyrirtækja voru megin hreyfiöflin á markaðnum. Varðandi sameiningar og hagræðingar var helst horft til mögulegrar sameiningar Landsbankans og Íslandsbanka. Fram, fram virkir Þegar ljóst var að Alþingi hefði lokað leið til þess að sameina sparisjóðina og viðskiptabankana lögðu menn á ráðin. Burðarás, sem er stjórnað af eigendum Landsbankans, átti eina eign óselda af sjávarútvegshlutanum - breska fyrirtækið Boyd Line. Það var selt Kaldbaki. Kaldbakur lét í skiptum hlutabréf í Íslandsbanka. Ekki var sjáanleg rökleg nauðsyn þess að láta bréfin í skiptum fyrir Boyd Line. Kaldbakur átti nóg lausafé. Landsbankamenn voru augljóslega að taka sér stöðu í Íslandsbanka. Heimildir úr þeirra herbúðum gengust enda við því að verið væri að kaupa hlutinn til að koma af stað hreyfingu á sameiningarhugmyndir bankanna. Ráðandi öflum í Íslandsbanka var ekki skemmt. Karl Wernersson, ásamt fjölskyldu sinni, hóf einnig að kaupa bréf í Íslandsbanka. Karl starfar með Björgólfsfeðgum í Actavis og voru margir á því að hann væri í liði með Landsbankanum í áhlaupi til sameiningar bankanna. Annað kom þó á daginn. Karl hefur í framhaldinu staðið þétt við hlið Bjarna Ármannssonar og þeirra sjónarmiða sem hann hefur haft um framtíð bankans. Þegar leið að aðalfundi Íslandsbanka seldu Landsbankinn og Burðarás hluti sína með framvirkum samningum til Helga Magnússonar og Orra Vigfússonar. Þeir héldu því báðir fram að þeir hygðust fá aðra fjárfesta til liðs við sig. Kaupin voru á gengi sem var talsvert yfir markaðsgengi. Úti á markaðnum var almenn skoðun sú að þessir hlutir væru í geymslu fyrir Landsbankann og Burðarás og ástæðan talin sú að Fjármálaeftirlitið hefði gert athugasemdir við eignarhlutinn og hótað að fella niður atkvæðisrétt viðkomandi á aðalfundi. Eignarhlutir Helga og Orra sneru svo til síns heima síðar á árinu í faðm Burðaráss og Landsbankans sem ekki voru á því að ala krógann við brjóst sér og bjuggu honum varanlegra fóstur hjá Straumi fjárfestingarbanka. Þar býr hann enn. Íslendingaþættir hinir nýrri Burðarás eignaðist í þessum viðskiptum stóran hlut í Straumi sem aftur á stóran hlut í Íslandsbanka. Fjármálaefirlitið á enn eftir að gefa grænt ljós á eignarhlutinn. Bjarni Ármannsson bjó við heimilisböl í Íslandsbanka. Meirihluti bankaráðsins var honum andsnúinn. Um tíma var útlitið talið ansi svart, en Bjarni reyndist seigur sem fyrr og tókst að byggja upp hóp í kringum sig. Fremstur í flokki fór Karl Wernersson sem hafði frumkvæði að því að hópur Bjarna meðal stærstu hluthafa bankans keyptu hlut Lífeyrissjóðs Verslunarmanna í Íslandsbanka. Þar með var horfið bakland Víglundar Þorsteinssonar sem ekki situr lengur í bankaráðinu. Barátta Bjarna og Víglundar var langvinn barátta tveggja lífsseigra; báðir höfðu oftar en einu sinni verið taldir af í hildarleiknum, en náð vopnum sínum á ný. Bjarni er nú með gott bakland í bankaráðinu, hvað sem síðar verður. Endanleg niðurstaða á eftir að fást um hvort Straumur verður til lengdar í hluthafahópnum og hvert ráðandi eigendur hans vilji stefna. Staða Bjarna hefur sjaldan verið sterkari. Íslandsbanki hafði verið talinn hægfara og lítt sókndjarfur. Um það leyti sem ró var að komast á í bankaráðinu bárust fréttir af tíðum Noregsferðum forstjórans. Íslandsbanki hafði keypt Kreditbankann í Álasundi sem ekki telst mjög stór. Hér áður fyrr sigldu íslensk skáld til Noregs og fluttu konungum drápur. Erindi Bjarna var að flytja bankastjóra fjórða stærsta viðskiptabanka Noregs þau tíðindi að Íslandsbanki vildi kaupa bankann. Það gekk eftir og útrás Íslandbanka var staðreynd og kom sumum á óvart. Stórkaupin og hápunktarnir Útrásin var töfraorð viðskiptalífsins á árinu. Þess verður sennilega helst minnst fyrir stórkaup ársins. KB banki var enn sem fyrr fremstur í flokki og keypti danska bankann FIH. Íslandsbanki og Landsbanki höfðu einnig áhuga á FIH. Veikur hluthafahópur var helsta hindrun Íslandsbanka og féll hann út snemma á ferlinu. Landsbankinn kom síðastur og fór næstsíðastur. KB banki hafði unnið að verkefninu um nokkurt skeið og Landsbankamenn hafa haldið því fram að þeir hafi ekki vitað af KB banka. Innan KB banka er sú skýring ekki talin líkleg. Þar telja menn að aðkoma Landsbankans hafi kostað KB banka um sjö milljarða króna hærra verð sem greiða þurfti fyrir bankann. Landsbankinn hafi ekki átt raunhæfan möguleika, en seljendurnir nýtt sér stöðuna til að hækka verðið. KB bankamenn kættust heldur ekki þegar verð bréfa Singer og Friedlander, sem bankinn á fimmtungshlut í, tók að hækka. Skýringin var sú að Burðarás hafði fjárfest verulega í bankanum. Flestir eru þeirrar skoðunar að KB banki munu ráðast í yfirtöku Singer og Friedlander, en hafi engan áhuga á að láta Landsbankamenn hækka verðmiðann eina ferðina enn. Kaup KB banka á FIH fyrir 84 milljarða eru meðal hápunkta ársins í viðskiptalífinu. Annar hápunktur eru kaup Baugs á Big Food Group. Bakkavör er einnig á góðri leið með að kaupa Geest. Björgólfur Thor Björgólfsson og Magnús Þorsteinsson hafa einnig verið fyrirferðarmiklir í kaupum erlendis. Latibær er að verða heimsborg og Íslendingar eiga Magasin de Nord. Framvarðasveit íslenskra kaupsýslumanna situr ekki auðum höndum. Hún náði merkum áföngum á árinu og ekki er að efa að tíðindamikið verður áfram á vígstöðvum viðskiptanna enn um sinn.
Mest lesið „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Leggja á 39 prósenta skatt á eignir slitabúanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira