Sannir Íslendingar 29. desember 2004 00:01 Af mikilli eftirvæntingu hef ég beðið fregna af störfum landa vorra í Afganistan, en eins og þjóðin veit var sendur hópur valinna manna til Kabúl til að sjá um rekstur flugvallarins þar. Er það framlag okkar Íslendinga við að koma á mannsæmandi ástandi þar um slóðir eftir að Bandaríkjamenn höfðu skilað fyrsta áfanga í því verkefni, en það var sem kunnugt er að sprengja helstu borgir landsins í rusl. Gekk það mjög vel og var frágangurinn allur til fyrirmyndar. Hefur nú gefist færi að sjá og meta þau góðu verk, ég vil segja afrek, sem landar okkar hafa þarna unnið, því Háskólabíó, þ.e. kvikmyndahús akademíunnar, hefur nú haft heimildarmyndina "Íslenska sveitin" til sýninga um nokkurt skeið. Ég brá mér að sjá myndina enda er fátt áhugaverðara en sannar heimildir um afreksmenn. Ekki lét hrifning mín á sér standa, enda áhrif myndarinnar samfelld hugljómun. Fyrst er til að taka röggsamlega stjórnun okkar manna á flugumferð um völlinn. Er greinilegt hve reynsla okkar á því sviði í okkar fjöllótta landi með sín vályndu veður nýtist þarna frábærlega. Þarna streyma inn flugvélar hvaðanæva með hjálpargögn, mest frá Bandaríkjamönnum. Þeir láta nú ekki eftir sér bíða þar sem einhverjir eiga bágt. Mitt í öllu kraðakinu gat svo að líta sendingu frá Íslandi. Þar mátti sjá hlaða af Goða og SS pylsum, og það á sama brettinu. Eitthvað voru eldri menn þarlendir tortryggnir á merkingarnar á SS pylsunum og var nokkuð starsýnt á Þórshamarinn á Eimskipafélagsbrettinu, en okkar menn leiðréttu það óðara hreint. Þarna voru ORA baunir, Frónkex, flatkökur og kleinur frá Ömmubakstri og Samsölubrauð. Mjólkurvara frá MS, skyr punktur is, Búri frá Osta og smjörsölunni, KEA súrmjólk og gott ef ég sá ekki bregða fyrir Jógúrtfernum merktum Húsavík, minni gömlu heimabyggð norðan heiða. Var nú sárt að vera hættur búskap, ef svo hefði ekki verið hefði þessi vara e.t.v. verið unnin úr mjólk úr kúnum mínum. Aumi ég. Samt var þetta allt harla gott. Og eins og skáldið sagði. "Þá heyrði ég hjarta mitt slá" Já svo sannarlega. Afhending alls þessa fer um hendur okkar manna. Öryggið og röggsemin er sem andi yfir vötnum. Þar er nú ekki vopnaskakið. Ó nei. Aldrei hafa Íslendingar betur sýnt að þeir hafa tilgang í veröldinni og maður fyllist stolti. Víkur þá sögunni að almennri uppbyggingu í borginni og nágrenni hennar. Þarna vinna heilu byggingafyrirtækin á vöktum við uppbyggingu. Gatnagerð, byggingu sjúkrahúsa, skóla og íbúða fyrir blessað fólkið sem við ásamt helstu öxulveldum hins góða erum að koma á frelsis- og framfarabraut. Blakta fánar viðkomandi ríkja yfir. Þetta eru örugglega mjög staðföst ríki. Vinir okkar Íslendinga. Fánýtt hjal eins og "Bykó byggir með þér" eða "Húsasmiðjan ekkert mál" hljómar ámátlega hjá öllu því sem þarna ber fyrir augu. Og vatnsveitan í Kabúl, - ja maður - Hún minnir á himnaríki.… Bráðum verður ekki að sjá að land þetta hafi orðið fyrir nokkrum skakkaföllum. Það verður um það leyti sem afreksmenn okkar koma heim. Þá vil ég að allir sannir Íslendingar fari suður á Keflavíkurvöll og standi heiðursvörð. Þá eiga forsetinn og hans nánustu fylgismenn úr ríkisstjórn Íslands að sæma þessa riddara norðursins heiðursmerkjum fyrir þau risaskref sem þeir hafa tekið á vegferð þjóðarinnar fram á veginn. Það hafa ekki aðrir gert. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar