Danir kaupa Hörpu Sjöfn 16. desember 2004 00:01
Málningafyrirtækið Harpa Sjöfn hefur verið selt til danska fyrirtækisins Flügger. Félögin hafa átt samstarf um árabil. Íslensk fyritæki hafa verið iðin við kaup í útlöndum en fátíðara er að erlend fyrirtæki fjárfesti hér á landi. Helgi Magnússon, forstjóri Hörpu Sjafnar, verður stjórnarformaður félagsins hér á landi en danskur framkvæmdastjóri, Holger Søe, mun sinna daglegum rekstri. Kaupverð er ekki gefið upp, en miðað við upplýsingar í tilkynningu til Kauphallarinnar í Kaupmannahöfn má gera ráð fyrir að kaupverðið sé nálægt sjö hundruð milljónum íslenskra króna. Helgi Magnússon segir að ekki verði gerðar grundvallarbreytingar á rekstri Hörpu Sjafnar við eigendaskiptin. "Harpa Sjöfn, áður Harpa hf., hefur átt margra ára farsælt samstarf við Flügger og við erum sannfærð um að nýir eigendur munu efla fyrirtækið og eiga gott samstarf við viðskiptavini og starfsmenn," segir Helgi. Fjölskylda Helga hefur átt 77 prósenta hlut í fyrirtækinu á móti fjölskyldu Þóru Guðrúnar Óskarsdóttur, dóttur eins stofnanda Hörpu árið 1936. Helgi segir að ekki sé sjálfgefið að menn selji svo rótgróið fjölskyldufyrirtæki. "Fyrir fimm árum hefði þetta líklega ekki komið til greina. Tímarnir breytast og mikil viðskipti eru með fyrirtæki bæði innan lands og utan." Hann segir að Harpa Sjöfn verði nú eignarhaldsfélag og búast megi við að félagið taki þátt í ýmsum fjárfestingum í framtíðinni. Flügger er í grunninn fjölskyldufyrirtæki. Ulf Schnack tók við rekstri þess árið 1970 af föður sínum sem keypti það 1948. Fyrirtækið tók þá ákvörðun að verða skráð almenningshlutafélag árið 1983 og hefur nýtt sér skráningu á markað til þess að sækja fram og kaupa fyrirtæki. Flügger er nú leiðandi fyrirtæki á Norðurlöndunum í sölu málningavara. Útrás fyrirtækisins hefur verið stýrt af Sören P. Olesen aðstoðarforstjóra. "Flügger hefur mikla trú á möguleikum Hörpu Sjafnar til vaxtar. Fyrirtækin tvö hafa átt náið samstarf í meira en 10 ár. Harpa Sjöfn hefur um árabil selt vörur frá okkur og notar litakerfi Flügger. Með kaupunum munum við styrkja enn frekar stöðu okkar á Norðurlöndunum sem leiðandi fyrirtæki á sviði framleiðslu og sölu á málningarvörum. Við sjáum fyrir okkur góð samlegðaráhrif af kaupunum og þau eru í samræmi við markmið fyrirtækisins um vöxt á Norðurlöndunum," segir Søren P. Olesen, aðstoðarforstjóri Flügger-samstæðunnar.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira